Beint í efni

Sumaropnun í Króki - samstarf við Garðakirkju

Málsnúmer 2002232

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

19. fundur

Upplýsingastjóri greindi frá hugmynd um samstarf við sóknir í Garðabæ og Hafnarfirði í tengslum við sumarmessur í Garðakirkju og sumaropnun í Króki á sunnudögum í sumar. Sóknirnar standa sameiginlega að sumarmessunum og ætlunin er að höfða til ferðamanna sem og heimamanna og skoða möguleika á menningarupplifun sem og útiveru í umhverfi Garðahverfis fyrir og eftir messu.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í þessa hugmynd sem felur m.a. í sér að færa til opnun í Króki á sunnudögum þannig að fleiri fái tækifæri til að heimsækja og skoða Krók. Upplýsingastjóra var falið að útfæra þetta nánar.