Niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks samkvæmt kjarasamningum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
50. (1958). fundur
Á fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið voru Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og Auður Jóhannsdóttir, deildarstjóri kjaradeildar og gerðu þær grein fyrir vinnu við innleiðingu á styttingu vinnutímans í stofnunum bæjarins.
Niðurstöður liggja fyrir í öllum stofnum bæjarins.
Bæjarráð samþykkir tillögur stofnana um styttingu vinnutímans og felur bæjarstjóra að staðfesta nýtt vinnutímafyrirkomulag fyrir hverja einstaka stofnun til að gilda frá 1. janúar 2021
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (1953). fundur
Á fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið voru Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og Auður Jóhannsdóttir, deildarstjóri kjarasviðs. Gerðu þær grein fyrir ákvæðum í kjarasamningum um styttingu vinnutíma dagvinnufólks þar sem almennt er gert ráð fyrir að vinnutími styttist um 13 mínútur á dag eða 65 mínútur á viku. Sögðu þær frá undirbúningi að mótun tillagna um fyrirkomulag á styttingu vinnutímans sem verða bornar undir atkvæði starfsmanna í leynilegri kosningu. Niðurstaðan verður lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Fram kom að mannauðsstjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu hafa samráð við mótun tillagna og þá leiðir Samband íslenskra sveitarfélaga samráð um málið á landsvísu.