Fjárhagsáætlun - staða
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
4. fundur
Farið yfir framlagða fjárhagsáætlun skólans fyrir 2021. Skólastjóri kynnti fjárhagsstöðu skólans og fór yfir áherslur í fjárhagsáætlun 2021. Sólveig lagði fram fyrirspurn um biðlista í skólanum. Skólastjóri svaraði að það væru um 200 á biðlista. Sveinbjörg og Sólveig óska eftir að sett verði fjármagn í að laga aðstöðu tónlistarskólans á Álftanesi og að húsnæði skólans í Kirkjulundi verði stækkað þá styðja þær að skólinn fái aukin stöðugildi. Nefndin tekur undir þær óskir.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
4. fundur
Skólastjóri fór yfir með hvaða hætti tónleikar fara fram í desembermánuði. Tónleikum verður streymt eða þeir teknir upp og sendir til foreldra/forráðamanna þar sem þeir geta ekki verið á tónleikum vegna sóttvarnarreglna í tengslum við covid-19. Haldnir verðar 34 tónleikar/tónfundir í skólanum fyrir jól.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
4. fundur
Skólastjóri fór yfir skólastarfið sl. vikur. Allir nemendur fengu einkakennslu, þ.e. hljóðfæra- og söngtíma. Hljómsveitarstarf og samspil féll niður en kennsla tónfræðigreina fór fram í fjarkennslu. Við gátum svo hafið allt hópastarf aftur 20. nóvember sl.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
3. fundur
Formaður fór yfir ferlið við undirbúning áætlanagerðarinnar. Umræða var á fundinum um áherslur TG við fjárhagsáætlunina. Skólastjóri mun óska eftir auknum stöðugildum við skólann, fjármagni til búnaðarkaupa og til að hljóðeinangra kennslustofu á Álftanesi.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
05
3. fundur
Skólastjóri fór yfir upphaf skólastarfs. Í skólanum eru nú 490 nemendur og 50 starfsmenn, kennslustaðir eru átta. Skólastarfið fór af stað með hefðbundnum hætti þrátt fyrir þær aðstæður sem uppi eru vegna Covid19. Reynt er að tryggja öryggi nemenda og kennara eins og kostur er með auknum sóttvörnum og með því að takmarka aðgang utanaðkomandi aðila að húsnæði skólans eins og hægt er. Í dag eru um 200 börn á biðlista við skólann.