Beint í efni

Reykjanesbraut. Undirbúningur fyrir skipulagsvinnu.

Málsnúmer 2103085

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

3. fundur

Skipulagsstjóri kynnti frumathugun verkfræðistofunnar Verkís á breikkun Reykjanesbrautar frá Breiðholtsbraut að Kaplakrika sem unnin hefur verið að beiðni Vegagerðarinnar. Þar kemur í ljós að unnt verður að breikka brautina um 2 akreinar í hvora átt sem er mikilvægt innlegg í allar áætlanir um uppbyggingu í austurhluta Garðabæjar.
Í skýrslunni er einnig lagðar til útfærslur á mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar annarsvegar við Vífilsstaðaveg og hinsvegar við Álftanesveg/Ofanbyggðarveg.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að hugað verði að undirbúningi gerðar deiliskipulags fyrir Reykjanesbraut í Garðabæ. Þá þarf m.a. að huga að göngu- og hjólatengingu frá Urriðaholti yfir og/eða undir Reykjanesbraut.