Beint í efni

Beiðni um umsögn vegna umsóknar Klettabæjar um starfsleyfi

Málsnúmer 2111156

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

4. fundur

Lagt er fram til kynningar umsókn Klettabæjar um starfsleyfi til að að reka stoðþjónustu í skammtímadvöl, sérstöku húsnæði fyrir börn með miklar þroska- og geðraskanir, atvinnu- og hæfingatengda þjónustu og frístundaþjónustu skv. 8., 17., 21., 24. og 16. gr. laga nr. 38/2018 í Hafnarfirði.

Fyrir liggur að Gæða- og eftirlitsstofnun hefur aflað upplýsinga um Klettabæ og telur að umsækjandi uppfylli skilyrði til að reka þá þjónustu sem minnst er á hér að framan. Í samræmi við það er nú fyrirhuguð útgáfa starfsleyfis fyrir starfsemina til þriggja ára.

Mál nr. 2111156 tekið fyrir, beiðni um umsögn vegna umsóknar Klettabæjar um starfsleyfi til að reka stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fatlað fólk. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfið sé veitt.