Beint í efni

Beiðni um umsögn vegna umsóknar Raunríks ehf. um starfsleyfi

Málsnúmer 2111159

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

4. fundur

Lagt er fram til kynningar umsókn frá Birnu Guðmundsdóttur f.h. Raunríks ehf.

Sótt er um starfsleyfi til að reka stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fatlað fólk skv. 26. gr. laga nr. 40/1991 og 8. gr. laga nr. 38/2018 í Garðabæ. Fyrir liggur að Gæða- og eftirlitsstofnun hefur aflað upplýsinga um Raunrík ehf og og telur að umsækjandi uppfylli skilyrði til að reka þá þjónustu sem minnst er á hér að framan. Í samræmi við það er nú fyrirhuguð útgáfa starfsleyfis fyrir starfsemina til þriggja ára.

Mál nr. 2111159 tekið fyrir, beiðni um umsögn vegna umsóknar Raunríks ehf. um starfsleyfi til að reka stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fatlað fólk. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfið sé veitt.