Jón Sveinsson og Stálvík
Málsnúmer 2201288
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
37. fundur
Skipasmíðastöðin Stálvík var stofnuð í Garðabæ 1961. Ýmislegt efni tengt fyrirtækinu er að finna í III. bindi Sögu Garðabæjar. Þegar mest lét störfuðu um 200 manns hjá fyrirtækinu og þar voru smíðuð yfir 50 stálskip, þar af 12 skuttogarar og mikil aflaskip á Íslandsmiðum.
Formaður hefur fengið senda hugmynd frá íbúa í Garðabæ um hvernig minnast megi Jóns Sveinssonar, frumkvöðuls og hugsjónamanns og hinnar merku sögu Stálvíkur í Garðabæ.
Vísað til menningarfulltrúa til áframhaldandi vinnslu.