Fundargerð bæjarráðs frá 22/3 ´22.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (902). fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi hljóðs og óskaði Stjörnunni til hamingju með sigur í bikarkeppni KKÍ. Þá ræddi Ingvar 9., tl., afgreiðslu umhverfisnefndar varðandi ágang máva í Sjálandshverfi, 14. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi aukinn fjölda sumarstarfsmanna og 15. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi FIFA vottun Stjörnuvallar og Miðgarðs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 12. tl., ársreikningur Strætó bs. 2021 og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Það er mikið áhyggjuefni að skera þurfi niður ferðir hjá Strætó vegna fjárhagserfiðleika.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hljóta að þurfa að endurskoða framlag þeirra til reksturs Strætó og taka afstöðu til þess sérstaklega hvort sveitarfélögin ætli að standa með almenningssamgöngum og halda þeim úti með þeim hætti að þær nýtist notendum á öllum tímum dags. Tíðni ferða skipta máli þegar kemur að hegðun notenda og nokkuð ljóst að ekki fjölgum við notendum þegar engar eru ferðirnar.“
Gunnar Einarsson, ræddi 9., tl., afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi ágang máva í Sjálandshverfi.
Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.