Beint í efni

Fundargerð skipulagsnefndar frá 24/3 ´22.

Málsnúmer 2203035F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (902). fundur

Ingvar Arnarson, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands, og óskaði eftir að bókun Baldur Ó. Svavarssonar í fundargerð skipulagsnefndar verði færð í fundargerð bæjarstjórnar.

„Undirritaður hefur áður rætt og gagnrýnt kynntar hugmyndir um uppbyggingu á s.k. Arnarlandi, norðan Arnarnesvegar - bæði á fundum skipulagsnefndar og einnig í bæjarstjórn.
Í fyrsta lagi að hugmyndir og fyrirætlan með svæðið skyldu ekki upphaflega fyrst bornar upp og ræddar í skipulagsnefnd. Það var ekki gert fyrr en eftir að samningar við Arnarland og tilheyrandi fyrirtæki höfðu verið undirritaðir og þegar ákveðið hvernig skyldi skipulagt og fyrir hvern. Það teljast vart lýðræðileg vinnubrögð.
Þá hefur undirritaður einnig gagnrýnt skipulagshugmyndina sjálfa sem byggir á að þar verði einungis íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Þar verði því í raun samfélagslega einsleit barnlaus byggð. Fyrsta barnlausa hverfið í bæjarfélaginu.
Enda segir í mati Skipulagsstofnunar um þessi áform m.a. „Skipulagsstofnun vill undirstrika að blöndun byggðar felst ekki einungis í blöndun þjónustu, starfsemi og íbúða heldur einnig blöndun íbúðabyggðarinnar sjálfrar, þ.e. blöndun íbúðagerða og eignaforms (m.a. hlutfall leiguíbúða)“ þá segir þar einnig „ Að mati Skipulagsstofnunar eru áform um íbúðir fyrir 50 ára og eldri ekki til þess fallin að styðja við þróun blandaðrar byggðar“
Blönduð byggð og íbúðagerð en er ein grunnforsenda vel heppnaðs og lifandi bæjarskipulags. Því ber að taka þessar athugasemdir Skipulagsstofnunar til alvarlegrar skoðunar og framkomnar skipulagshugmyndir til endurskoðunar.“

Þá ræddi Ingvar 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Gatnamótin við Urriðaholt og Kauptún er hættuleg gatnamót eins og komið hefur fram og dæmi sannar. Það er óviðunandi að ekki sé búið að bregðast hraðar við til þess auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda samhliða vaxandi byggð í Urriðaholti. Enda eru þessi sömu gatnamót að hafa töluverð áhrif á barnafjölskyldur í hverfinu. Aukið skutl sem annars væri óþarft ef göngu- og hjólastígar yfir gatnamót væru örugg.
Við í Viðreisn höfum kynnt okkar sýn á þessum veruleika og lagt til samráð við íbúa um að velja örugga og aðgengilega leið yfir Reykjanesbrautina sem nýtist gangandi og hjólandi vegfarendum sem best.“

Sigurður Guðmundsson, ræddi 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis og 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis.

Ingvar Arnarson ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 9. tl., skipulagslýsingu vegna tillögu að deiliskipulagi Arnarlands.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 15. tl, umsögn um skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis.

Fundargerðin lögð fram.