Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 5/4 ´22.

Málsnúmer 2203058F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (902). fundur

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., drög að samningi við Alþjóðaskólann um úthlutun lóðar fyrir starfsemi skólans við Þórsgrund.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., kynningu verkefnastjóra á stöðu og vinnu við áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið og 16. tl., fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varða þjónustu við fatlað fólk. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Það skiptir gríðarlega miklu máli í allri umræðu um gæði þjónustu að hafa upplýsingar um þau gögn sem fyrir liggja um eins mikilvæga og viðkvæma þjónustu og þjónusta við fatlað fólk er. Til þess að geta bætt þjónustu þurfum við að vera upplýst og hafa mælingar og raungögn til að vinna út frá.“

Þá ræddi Sara Dögg 17. tl., drög að útboðslýsingu vegna útboðs á skólamáltíðum í skólum Garðabæjar.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu verkefnastjóra á stöðu og vinnu við áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., kynningu verkefnastjóra á stöðu og vinnu við áfangastaða- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið 11. tl., drög að samningi við Vegagerðina um veghald Álftanessvegar og 12. tl., drög að samningi við Alþjóðaskólann um úthlutun lóðar fyrir starfsemi skólans við Þórsgrund.

Almar Guðmundsson, ræddi 9. tl., bréf Byggingarsamvinnufélags eldri borgara í Garðabæ varðandi mögulega aðkomu félagsins að uppbyggingu frekari byggðar fyrir eldri borgara á Hleinum og 16. tl., fyrirspurn um fjölda tilkynninga er varða þjónustu við fatlað fólk.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 14. tl., opnun tilboða í framkvæmdir við jarðvinnu og yfirborðsfrágang knattspyrnuvallar í Urriðaholti.

Fundargerðin sem er 18 tl., er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.