Tillaga um stuðning við starfsemi leikskóla
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
33. fundur
Leikskólanefnd fagnar tillögunum sem fram eru komnar um stuðning við leikskólastigið og því fjármagni sem veitt er til að styðja við starfsemi leikskólanna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
6. (902). fundur
Almar Guðmundsson kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu sem hann flytur ásamt Sigríði Huldu Jónsdóttur.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir 25 milljóna króna framlag til fræðslu- og menningarsviðs til eflingar leikskólastigsins með áherslu á að mæta mönnunarvanda leikskólanna. Bæjarstjóra er falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun vegna fjármögnunar.“
Greinargerð.
Leikskólastigið er það skólastig sem leggur grunninn að skólagöngu barna og velferð. Þar fer fram gríðarlega mikilvægt starf sem mikilvægt er að standa vörð um. Erfiðlega hefur gengið að ráða starfsfólk á leikskóla í Garðabæ og á höfuðborgarsvæðinu í vetur og mannekla hefur haft áhrif á mönnun og þjónustu. Ýmsar ástæður liggja þarna að baki. Í október 2021 vann fræðslustjóri samantekt vegna uppbyggingar og starfsmannamála og byggir þessi greinargerð á þeim grunni.
Leikskólastigið er að glíma við ýmsar áskoranir en þær eru helstar;
- Mikið álag á stjórnendur
- Hlutfall fagfólks fer lækkandi
- Nýliðun lítil og stéttin að eldast
- Fáir sækja um störf á leikskólum
- Ásókn í leikskólakennaranám ekki nægjanlegt miðað við þörf fyrir menntað starfsfólk
- Nemar eru mikið frá vegna starfslota
- Hlutfall barna sem sækir leikskóla fer hækkandi og er nær 100% í dag.
- Fæðingaorlof hefur lengst og krafa aukist um að tengja leikskólapláss við lok fæðingarorlofs
- Unnið er með það markmið að taka inn börn á leikskóla þegar þau verða 12 mánaða gömul sem eykur álag vegna aldurs barnanna og börnum fjölgar
- Börn eru tekin inn reglulega yfir árið sem eykur álag á skólana vegna aðlögunartíma barna sem eru að byrja og ekki eru alltaf laus pláss á þeim leikskólum sem foreldrar óska og því mikið um flutning barna á milli leikskóla þegar pláss losna
- Opnunartími leikskólanna er langur
- Dvalartími barnanna er langur
- Lagalegt hlutverk leikskóla er ótryggt
- Samfélagsleg sýn á hlutverk leikskóla eru ólík
- Skýra þarf betur innra skipulag leikskóla með hliðsjón af menntun starfsmanna og umönnun barna
- Stytting vinnuvikunnar og aukinn undirbúningstími hefur áhrif á skipulag skólastarfsins og mönnun skólanna
- Orlofsdögum starfsmanna hefur fjölgað
- Taka verður tillit til fækkunar barna á deild eftir því sem þau eru yngri og ef barn þarf mikinn stuðning
Garðabær hefur reynt að koma til móts við starfsfólk leikskóla með ýmsum hætti. Má þar m.a. nefna;
- Garðabær greiðir fasta yfirvinnutíma til stjórnenda
- Góður tækjabúnaður ? stjórnendur og leikskólakennarar fá fartölvu
- Veittir eru sérstakir styrkir til náms
- Þróunarsjóður leik- og grunnskóla hefur eflt faglegt starf starfsmanna og þróunarstarf í skólum Garðabæjar
- Í dag er unnið að þremur verkefnum í samstarfi við háskóla til að efla gæði í skólastarfi
- Boðleiðir í stjórnsýslunni í Garðabæ eru stuttar og stjórnendur hafa orð á því hvað það er mikils virði. Stuðningur frá skólaskrifstofu er mikill og þeir ánægðir með hann
- Stjórnendahópur leik- og grunnskóla er mjög faglega sterkur
- Starfsumhverfi leik- og grunnskóla er mjög frjótt og samstarf milli skóla mjög gott
- Skólar hafa leitað allra leiða til að ráða til sín starfsfólk og m.a. verið í góðu samstarfi við Virk starfsendurhæfingu
- Farið var í sérstaka auglýsingaherferð til að fjölga umsækjendum
Í samtölum við skólastjóra leikskólanna í Garðabæ þá hafa ýmsar hugmyndir verið nefndar til að koma til móts við álag á starfsfólk skólanna. M.a. hefur verið rætt um;
- Opnunartími leikskóla verði endurskoðaður. Opið verði frá kl. 8:00 ? 16:30. Ef það á að vera opið til kl. 17:00 þá er ekki forsvaranlegt að hafa eitt barn á skóla eftir kl. 16:30. Horfa verði til lágmarks fjölda t.d. fimm barna.
- Dvalartími barna verði endurskoðaður. 12 mánaða gömul börn verði ekki lengur en 7 tíma á dag í skólanum. Önnur börn verði ekki lengur en 8,5 tíma á dag í skólanum.
- Frekari lokanir í samræmi við grunnskólana.
- Barngildi verði endurskoðuð ? þ.e. fjölda barna á starfsfólk.
- Sérstökum potti verði komið á til að;
- Niðurgreiða líkamsrækt starfsmanna
- Til að greiða starfsfólki samgöngustyrki
- Borga ófaglærðum auka tíma
- Starfsumhverfi leikskólanna verði skoðað til að greina mikla aukningu á veikindum
- Kaupa þjónustu af Virk eða Auðnast. Starfsanda ? vinnustaðamenningu.
- Komið verði á samstarfssamning við Háskóla Íslands og menntavísindasviði.
- Sumir skólar hafa burði til að efla innra starfið aðrir ekki. Þar þarf stuðning frá háskólanum.
- Efla enn frekar þróunarsjóð leikskóla
- Efla enn frekar sérverkefnasjóð leikskóla
Hægt væri að taka upp heimagreiðslur til foreldra barna sem eiga börn sem eru orðin 12 mánaða og fá ekki strax pláss á leikskóla. Greiðslur verði í samræmi við niðurgreiðslur til dagforeldra og greiðslur falli niður um leið og barn kemst inn. Eins falla greiðslur niður ef foreldri hafnar tilboði um leikskólavist.
Mikilvægt er að skapa jákvæða umræðu og jákvætt viðhorf til leikskólastigsins. Það er mikilvægt að auka virðingu og skilning á starfsemi leikskóla fyrir samfélagið og börnin. Þá er mikilvægt að móta umræðuna út frá velferð, þroska og menntun barnanna. Nauðsynlegt er að taka samtal við hagsmunaaðila eins og foreldra, atvinnulífið, félag stjórnenda í leikskólum og félag leikskólakennara. Þá er kominn tími til að samband íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við stjórnvöld og samtök atvinnulífsins haldi ráðstefnu um stöðu leikskólastigsins í landinu og áskoranir og komið verði með raunhæfa sýn á framtíð leikskólastarfs á Íslandi.
Almar Guðmundsson
Sigríður Hulda Jónsdóttir
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi viðbótartillögu.
„Lagt er til að Garðabær verji tíma og fé í endurskoðun á starfsumhverfi leikskólakennara með það að markmiði að samræma það að starfsumhverfi grunnskólakennara þannig að vinnutími leikskólakennara verði sá sami og grunnskólakennara.“
Greinargerð
Alvarlegur mönnunarvandi í leikskólum Garðabæjar blasir við og því mikilvægt að bregðast við með aðgerðum til framtíðar. Ráðast verður á rót vandans og fara markvisst í að leita leiða til að fjölga leikskólakennurum inn í leikskólum.
Þann fyrsta janúar 2020 tóku gildi lög sem meðal annars kveða á um að leyfisbréf kennara geta gilt þvert á skólastig. Þegar breytingin tók gildi máttu strax sjá að flæðið á milli skólastiga var ójafnt. Á meðan 298 leikskólakennarar kusu að færa sig yfir í grunnskóla voru það aðeins 97 grunnskólakennarar sem fóru yfir í leikskóla.
Við þessa lagabreytingu missti leikskólastigið 201 kennara í einni svipan. Það er þungt högg fyrir skólastig sem þegar berst í bökkum. Ástæða þess að skólastigin eru misaðlaðandi eru fyrst og fremst ólíkar starfsaðstæður og vinnutímafyrirkomulag. Markmið sveigjanleika laganna var að auka eðlilegt flæði á milli skólastiga. Flæðið má hins vegar aldrei vera nánast eingöngu af leikskólastiginu yfir á grunnskólastigið eins og tölurnar sýna. Þetta er gott markmið og göfugt en kallar á bættar starfsaðstæður á leikskólastiginu.
Leikskólastigið er mjög viðkvæmt þegar kemur að mönnun og hefur því innleiðing á styttingu vinnuvikunnar reynst flóknari og erfiðari í framkvæmd en almennt gerist á öðrum vinnustöðum sveitarfélaga.
Með ákveðnum skipulagsbreytingum og ákveðinni útfærslu á styttingu vinnuvikunnar má koma á betra jafnvægi án nokkurs kostnaðar að heitið geti með því að samræma skólaár í leik- og grunnskólum.
Sara Dögg Svanhildardóttir.
Sigríður Hulda tók til máls um framlagðar tillögur.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls um framlagðar tillögur og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Það er jákvætt að það sé verið að bæta við þennan málaflokk á þessum tímapunkti þar sem starfsemi leikskóla hefur sjaldan staðið jafn höllum fæti eins og staðan er núna. Leikskólamál hafa ítrekað verið í umræðu á þessu kjörtímabili og í þeirri umræðu höfum við í Garðabæjarlistanum verið dugleg að koma með ábendingar um það hvað mætti skoða til þess að bæta starfsumhverfi kennara og við fögnum því að sjá mörg þeirra atriða þarna á lista hugmynda til að koma til móts við álag starfsfólks skólanna. Það er mikilvægt að hlusta á skólastjórnendur t.a.m. varðandi styttingu vinnuvikunnar og að þeir fái svigrúm til þess að aðlaga styttingu að sínum leikskóla.“
Gunnar Einarsson, tók til máls um framlagðar tillögur og lagði til að viðbótartillögu Söru Daggar verði vísað til umfjöllunar leikskólanefndar og með hvatningu til stjórnar SSH og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um að skoða stöðu leikskólans í samfélaginu.
Ingvar Arnarsson tók til máls um framlagðar tillögur.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framlagðar tillögur.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framlagðar tillögur.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framlagðar tillögur
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að vísa viðbótartillögu Söru Daggar til umfjöllunar leikskólanefndar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um stuðning við starfsemi leikskólans.