Tillaga Viðreisnar og Framsóknarflokks um stefnumótunarvinnu á starfi félagsmiðstöðva Garðabæjar með það að markmiði að styrkja starf og bæta starfsumhverfi.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
4. fundur
Afgreiðsla tillögunnar varðandi skoðun á fjármagni til félagsmiðstöðvanna er vísað til umræðu um fjárhagsáætlun eftir að áherslur í starfi þeirra næsta ár hafa verið lagðar fram. Ráðstefna um starf félagsmiðstöðva í Garðabæ fer fram 14. september og mótun starfsáætlana verður unnin í framhaldi af því.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
9. (905). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja til við bæjarstjórn að farið verði í stefnumótunarvinnu á öllu starfi félagsmiðstöðva Garðabæjar. Einnig leggja bæjarfulltrúar til að fjármagn verði tryggt til uppbyggingar á félagsstarfi á miðstigi grunnskólanna sem og við unglingastig Urriðaholtsskóla við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.“
Greinargerð
Garðalundur er ein af stærstu félagsmiðstöðvum landsins og hefur í gegnum árin verið leiðandi í félagsstarfi ungmenna og starfsumhverfi þeirra. Starfsemi félagsmiðstöðva og hlutverk þeirra hefur tekið miklum breytingum frá því að uppganga þeirra hófst. Síðustu ár hefur orðið ákveðin stöðnun í þróun starfsins og er kominn tími til að stíga næstu skref í framþróun á þessu sviði. Í flestum sveitarfélögum er umræðan eins, skortur er á fagfólki til þess að tryggja gæði, nýbreytni og árangur starfsins.
Í bæjarfélögunum í kringum okkur hefur víða verið farið í mikla stefnumótun á starfi félagsmiðstöðva, tómstundamiðstöðva, frístundaheimila og annarrar þjónustu við börn.
Reykjavíkurborg hefur til að mynda gert ítarlega stefnuskrá fyrir tómstundamiðstöðvar og verklag og vert að líta til þeirra sem eru hvað mest leiðandi í þessu starfi. Þar er hlutverk félagsmiðstöðvanna mjög vel skilgreint og til eftirbreytni. Það er mat okkar í Viðreisn að nú sé þarft að fara í samskonar vinnu í Garðabæ.
Til að varpa ljósi á stöðuna í Garðabæ er vert að draga fram dæmi um nágrannasveitarfélag Garðabæjar, Hafnarfjörð til þess að setja hlutina í samhengi.
Að meðaltali eru um 160 börn í 8. ? 10. bekk í hverjum skóla í Hafnarfirði. Fjölmennasti skólinn er með 223 ungmenni í unglingadeild en sá minnsti er með 75. Ef tekið er inn í dæmið að í Hafnarfirði eru félagsmiðstöðvarnar að þjónusta frístund þá eru tveir skólar sem eru nálægt Garðaskóla í fjölda en annar (Hraunvallaskóli) er með 596 nemendur og hinn (Öldutúnsskóli) er með 608 nemendur í 1. til 10. bekk. Þessar starfsstöðvar hafa með sér auka stjórnendur og skólinn sem hefur náð 600 markinu hefur tvo auka stjórnendur.
Garðalundur er ein af stærstu félagsmiðstöðvum landsins í samhengi við hversu mörg börn hún á að þjónusta. Garðalundur er að þjónusta rétt undir 600 börn í unglingadeild og stefnir í yfir 600 næsta skólaár í samanburði við Hafnarfjörð er sá fjöldi á við unglingadeildir í 3-5 skólum í Hafnarfirði (3 fjölmennustu eða 5 minnstu).
Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi Viðreisnar
Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
Björg Fenger, tók til máls um framkomna tillögu og lagði fram f.h. meirihlutans eftirfarandi bókun.
„Í lýðheilsu- og forvarnarstefnu Garðabæjar sem samþykkt var á síðasta ári er m.a. lögð áhersla á skipulagt frístunda- og tómstundastarf barna og unglinga. Enda hafa rannsóknir sýnt að skipulagt starf er ein besta forvörn fyrir börn og ungmenni. Starf félagsmiðstöðvanna er þar mikilvæg stoð enda eru þar skapaðar aðstæður fyrir börn og ungmenni til að njóta samveru og öðlast hlutverk undir leiðsögn leiðbeinenda.
Á undanförnum árum hefur samstarf og samvinna félagsmiðstöðvanna í bænum aukist sem hefur eflt og þroskað starfið sem og fjölbreytileika þess. Jafnframt hefur framboð á starfsemi í félagsmiðstöðvunum fyrir börn á miðstigi verið aukið.
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí sl. er að finna fyrirheit um að starfsemi félagsmiðstöðva yrði efld, bæði fyrir börn og ungmenni. Einn liður í þeirri vinnu gæti verið stefnumótun fyrir félagsmiðstöðvarnar.
Lagt er til að tillögunni verði vísað til íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs til nánari skoðunar og útfærslu.“
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögunni til íþrótta- og tómstundaráðs og ungmennaráðs.