4. fundur
4. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
14.09.2022
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Einar Örn Ævarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Forvarnavika Garðabæjar 2022
Forvarnavika Garðabæjar 2022 verður 5.-12. október nk. undir kjörorðinu "farsæld". Áhersa er á að endurvekja foreldrastarf og skapa viðburði þar sem einstaklingar hittast og taka virkan þátt.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi fór yfir "Lýðheilsu- og forvarnaáætlun Garðabæjar og forvarnaviku Garðabæjar 2022. Forvarnavikan verður haldin 5.-12. október nk. undir kjörorðinu "farsæld". Áhersa er á að endurvekja foreldrastarf og skapa viðburði þar sem einstaklingar hittast og taka virkan þátt.
Bent var á mikilvægi þess að hvetja börn og ungmenni til hjálmanotkunar á vespum og rafhlaupahjólum, en mjög ber á óábyrgri hegðun við notkun slíkra tækja.
Samþykkt var að senda út áminningar um útivistartíma barna auk ráðlegginga um "rafrænan útivistartíma".
02
Frisbígolfvöllur við FG
Kynnt voru áform um uppsetningu á frisbígolfvelli í kringum Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Umræður voru um staðsetningu og lögun vallarins. Ákveðið að skoða nánar áhrif vallarins á nærumhverfið. Málið rætt að nýju þegar nánari upplýsingar liggja fyrir."
03
Fjölskylduhlaup í stað kvennahlaups
Handknattleiksdeild Stjörnunnar í umboði aðalstjórnar óskar eftir að halda "fjölskylduhlaup Garðabæjar laugardaginn 1. október sem hluta af íþróttaviku Evrópu. Hlaupið kæmi í stað Kvennahlaupsins sem nú hefur verið lagt af en átti sitt upphaf og sinn sess í Garðabæ.
ÍTG fagnar fram kominni ósk Handknattleiksdeildar Stjörnunnar, í umboði aðalstjórnar, eftir að halda "Fjölskylduhlaup Garðabæjar" laugardaginn 1. október sem hluta af íþróttaviku Evrópu. Það er kærkomið að halda í heiðri því frumkvæði sem Kvennahlaupið var með því að breyta áherslum þess í átt að fjölskylduviðburði í Garðabæ.
ÍTG leggur til að það fjármagn sem ætlað var til Kvennahlaupsins fari til framkvæmdaraðila Fjölskylduhlaups Garðabæjar.
04
Tillaga Viðreisnar og Framsóknarflokks um stefnumótunarvinnu á starfi félagsmiðstöðva Garðabæjar með það að markmiði að styrkja starf og bæta starfsumhverfi.
Afgreiðsla tillögunnar varðandi skoðun á fjármagni til félagsmiðstöðvanna er vísað til umræðu um fjárhagsáætlun eftir að áherslur í starfi þeirra næsta ár hafa verið lagðar fram. Ráðstefna um starf félagsmiðstöðva í Garðabæ fer fram 14. september og mótun starfsáætlana verður unnin í framhaldi af því.
05
Júdófélag Garðabæjar samstarfssamningur
Osk JG um samstarfssamning og aðstöðu.
ÍTG samþykkir drög að samstarfssamningi við Júdófélag Garðabæjar enda er hann í megin atriðum eins og samningar við önnur íþróttafélög. Upphæð samningsins verði ákveðin við fjárhagsáætlunargerð bæjarins fyrir árið 2023.
06
SheRuns - ósk um ferðastyrk
Óskað er eftir ferðastyrk vegna ferðar 12 stúlkna úr FG á leiðtogaverkefnið "SheRuns" í Brussel.
ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð kr. 240.000,- til 12 stúlkna úr FG sem taka þátt í leiðtogaverkefninu "SheRuns" í Brussel. Styrknum er ætlað að skiptast jafnt á þátttakendur verkefnisins.
07
Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Osk um ferðastyrki í tvær (2) ferðir kr 40.000,-
Pétur Fannar Gunnarsson vegna ferðar á vegum DSÍ á Heimsmeistaramót, International, Dutch Open, Imperial og London Ball til Englands, Pollands, Hollands og Hong Kong.
ÍTG samþykkir ferðastyrki í tvær (2) ferðir alls kr 40.000,- til Péturs Fannars Gunnarssonar vegna ferða á vegum DSÍ á Heimsmeistaramót, International, Dutch Open, Imperial og London Ball til Englands, Pollands, Hollands og Hong Kong.
08
Polina Oddr - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Polina Oddr sækir um ferðastyrki í tvær (2) ferðir ferðir kr. 40.000,- á vegum DSÍ á Heimsmeistaramót, International, Dutch Open, Imperial og London Ball til Englands, Pollands, Hollands og Hong Kong.
ÍTG samþykkir ferðastyrki til Polina Oddr í tvær ferðir alls kr. 40.000,- á vegum DSÍ á Heimsmeistaramót, International, Dutch Open, Imperial og London Ball til Englands, Pollands, Hollands og Hong Kong, 2022
09
Þórdís Unnur Bjarkadóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sótt er um ferðastyrk fyrir Þórdísi Unni Bjarkadóttur kr. 20.000,- vegna landsliðsferðar á NM unglinga í bogfimi í Finnlandi 14. júlí 2022.
ÍTG samþykkir ferðastyrk fyrir Þórdísi Unni Bjarkadóttur kr. 20.000,- vegna landsliðsferðar á NM unglinga í bogfimi í Finnlandi 14. júlí 2022.
10
Guðmundur Steinn Markússon - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sótt er um ferðastyrk fyrir Guðmund Stein Magnússon að upphæð 20.000,- vegna ferðar á EM í hópfimleikum 12.-18. september 2022.
ÍTG samþykkir ferðastyrk fyrir Guðmund Stein Magnússon að upphæð 20.000,- vegna ferðar á EM í hópfimleikum 12.-18. september 2022.
11
Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sótt er um ferðastyrk fyrir Sonju Lind Sigsteinsdóttur kr. 20.000,- vegna HM U18 í N-Makedóníu 28. júlí 2022
ÍTG samþykkir ferðastyrk fyrir Sonju Lind Sigsteinsdóttur kr. 20.000,- vegna HM U18 í N-Makedóníu 28. júlí 2022
12
Ethel Gyða Bjarnasen - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sótt er um ferðastyrk fyrir Ethel Gyðu Bjarnasen kr. 20.000,- vegna ferðar á HM U18 í Makedoníu 18. júlí 2022.
ÍTG samþykkir ferðastyrk fyrir Ethel Gyðu Bjarnasen kr. 20.000,- vegna ferðar á HM U18 í Makedoníu 18. júlí 2022.
13
Sigurður Rúnar Sigurðsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sótt er um ferðastyrk fyrir Sigurð Rúnar Sigurðsson kr. 20.000,- vegna EM U18 karla í handbolta 27. júlí - 8. ágúst 2022 í Rúmeníu.
ÍTG samþykkir ferðastyrk fyrir Sigurð Rúnar Sigurðsson kr. 20.000,- vegna EM U18 karla í handbolta 27. júlí - 8. ágúst 2022 í Rúmeníu.
14
Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansfélag Reykjavíkur sækir um afreksstyrk fyrir Pétur Fannar Gunnarsson dansara
ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansfélags Reykjavíkur fyrir Pétur Fannar Gunnarsson dansara að upphæð kr. 125.000,-
15
Polina Oddr - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansfélag Reykjavíkur sækir um afreksstyrk fyrir Polina Oddr dansara.
ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansfélags Reykjavíkur fyrir Polina Oddr dansara að upphæð kr. 125.000,-
16
Alex Freyr Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dansfélag Hafnarfjarðar sækir um afreksstyrk fyrir Alex Frey Gunnarsson dansara.
ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansfélags Hafnarfjarðar fyrir Alex Frey Gunnarsson dansara að upphæð kr. 125.000,-
17
Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Borðtennisdeild ÍF sækir um afreksstyrk fyrir Hákon Atla Bjarkason sem keppir í borðennis fatlaðra og stefnir að þátttöku á Paralympics í París 2024.
ÍTG samþykkir afreksstyrk Borðtennisnefndar ÍF um afreksstyrk að upphæð kr. 225.000,- fyrir Hákon Atla Bjarkason sem keppir í borðennis fatlaðra og stefnir að þátttöku á Paralympics í París 2024.
Eiríkur Björn Björgvinsson kom og sat síðasta hluta fundarins.
Forstöðumenn félagsmiðstöðvanna og frístundar fatlaðra mættu og kynntu sig og starfsemi sína í stuttu máli.
Ráðstefna um starfsemi félagsmiðstöðvanna hófst kl. 10:00