Beint í efni

Fjölskylduhlaup í stað kvennahlaups

Málsnúmer 2208874

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

4. fundur

Handknattleiksdeild Stjörnunnar í umboði aðalstjórnar óskar eftir að halda "fjölskylduhlaup Garðabæjar laugardaginn 1. október sem hluta af íþróttaviku Evrópu. Hlaupið kæmi í stað Kvennahlaupsins sem nú hefur verið lagt af en átti sitt upphaf og sinn sess í Garðabæ.

ÍTG fagnar fram kominni ósk Handknattleiksdeildar Stjörnunnar, í umboði aðalstjórnar, eftir að halda "Fjölskylduhlaup Garðabæjar" laugardaginn 1. október sem hluta af íþróttaviku Evrópu. Það er kærkomið að halda í heiðri því frumkvæði sem Kvennahlaupið var með því að breyta áherslum þess í átt að fjölskylduviðburði í Garðabæ.
ÍTG leggur til að það fjármagn sem ætlað var til Kvennahlaupsins fari til framkvæmdaraðila Fjölskylduhlaups Garðabæjar.