Óttuhæð 2 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2207211
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um það hvort heimilað verði að reisa girðingu allt að 2 m meðfram lóðarmörkum að Hæðarbraut.
Svar: Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til að víkja frá ákvæðum samþykktar bæjarstjórnar um veggi og girðingar á þessum stað en þar segir að hæð girðinga að safngötu (Hæðarbraut) skuli ekki vera hærri en 1,5 m. Einnig segir í samþykkt að gæta skuli að sjónlínum við horn og er ekki æskilegt að girðing sé hærri en 1,2 m við horn. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við staðsetningu girðingar eins og hún hefur verið reist utan lóðarmarka.