Móaflöt 25 - stækkun á byggingareit - fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Málsnúmer 2210284
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn um stækkun byggingarreits raðhúsalóðar að Móaflöt 25 sem er í raðhúsalengjunni Móaflöt 17-27 en í henni eru 6 raðhúsaeiningar.
Skipulagsnefnd mælir ekki með því að byggingarreitir séu stækkaðir út á framlóðir og bendir á að við gerð nýrrar deiliskipulagsáætlunar fyrir Flatir var gert ráð fyrir stærri byggingarreitum á baklóð til að koma til móts við stækkunarmöguleika.
Ef farið yrði í að gera breytingar á framlóðum þyrfti að gera það með breytingu sem næði til sambærilegra raðhúsalóða við Móaflöt. Einnig er bent á að beiðni um breytingar á deiliskipulagi í raðhúsalengju þarf að vera með samþykki allra eigenda samstæðunnar.