Beint í efni

Yfirferð erindisbréfs.

Málsnúmer 2210295

Ferill máls

Ungmennaráð Garðabæjar

01

6. fundur

Farið yfir erindisbréf ungmennaráðs frá 2015 og óskað eftir athugasemdum (með rökstuðningi) hvað er úrelt og hverju má breyta.

M.a. var rætt um að hækka aldur ungmenna í ráðinu upp í 25 ára aldur.

Fulltrúar skoði milli funda.

Ungmennaráð Garðabæjar

02

6. fundur

Farið yfir drög ráðsins um starfsáætlun og athugasemdir sem fulltrúar ungmennaráðs höfðu varðandi hana.

Rætt var að færa ungmennaþingið frá febrúar og hafa það í október/nóvember frekar.

Einnig var rætt um að þó svo að til dæmis fundur með bæjarstjórn sé skráður í mars, þá er möguleiki að fá fund með þeim öðrum tíma á árinu ef það kemur upp eitthvað málefni sem fulltrúar brenna fyrir.

Ungmennaráð Garðabæjar

03

6. fundur

Fulltrúi Álftaness ræddi lítið framboð af íþróttavalmöguleikum á Álftanesi fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára. Einungis blak er í boði fyrir þann aldurhóp. Fyrir 12-16 ára stráka er aðeins körfubolti og blak í boði. Unglingum á þessu aldursbili finnst erfitt að hafa aðeins þessa tvo valmöguleika í boði og vilja meiri fjölbreytileika fyrir alla. Það er erfitt fyrir marga að þurfa að taka strætó fram og til baka í Ásgarð nokkrum sinnum í viku.

Samstarf við önnur ungmennaráð.

Fulltrúar voru sammála um að gott væri að hefja samstarf við önnur ungmennaráð í Kraganum, sjá hvað þau eru að gera og læra hvort af öðru. Umsjónarmanni og formanni falið að skoða milli funda.

Ungmennaráð Garðabæjar

04

6. fundur

Verkefnið Barnvænt sveitarfélag og þátttaka ungmennaráðs í því.

Gunnar kynnti nýjum fulltrúum fræðsluvef Unicef og óskaði eftir að allir fulltrúar kynntu sér barnasáttmálann og rifji upp t.d. myndband sem útskýrir verkefnið barnvænt sveitarfélag. Öflugt ungmennaráð og hlutverk þess skiptir miklu til þess að innleiðing og verkefnið takist vel.

Fulltrúar setja sér það markmið að klára fræðslunámskeiðið um barnasáttmálann fyrir næsta fund.

Í smíðum er aðgerðaáætlun fyrir BVS. Gunnar kynnti tillögur í aðgerðaáætlun BVS sem eru til að efla ungmennaráðið, tilgang og möguleika til áhrifa.

Ungmennaráð Garðabæjar

05

5. fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar kom á fundinn og kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar, ræddi fjárhag og framkvæmdir bæjarins, byggingu úrræðis fyrir fatlaða við Brekkuás og stækkun Urriðaholtsskóla.

Ungmennaráð Garðabæjar

06

5. fundur

Rætt um skipulagningu hópeflisferðar fyrir ungmennaráð, fjármál ofl.

Ungmennaráð Garðabæjar

07

4.. fundur

Ákveðið að leggja inn beiðni um Garðabæjar netföng fyrir fulltrúa ungmennaráðsins.

Umsjónarmanni falið að hafa samband við tölvudeild varðandi það.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 - Barnvæn fjárlög:

Ákveðið að óska eftir kynningu á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022 frá Lúðvík Hjalta Jónssyni, fjármálastjóra Garðabæjar á næsta fund ungmennaráðs. Óska eftir útlistun um helstu áhrif og breytingar á málum sem varða málefni barna og ungmenna. Ákveðið að bjóða fulltrúum úr ráðum nemenda grunnskóla Garðabæjar með á þann fund.

Samstarf við önnur ungmennaráð og skylda aðila:

Valgerður Eyja ræddi möguleika þess að vera í formlegu samstarfi við ungmennaráð frá norðurlöndum.

Einnig bent á að hægt er að sækja um aðild í Landssamband ungmennafélaga https://luf.is/.skoða hvort það eigi við.

Góð hugmynd frá fulltrúum Álftanesskóla:

Fullrúar Álftanesskóla kynntu hugmynd frá nemendaráði Álftanesskóla þess eðlis að boðið sé upp á ávexti í frímínútum í grunnskólum Garðabæjar.



Ungmennaráð Garðabæjar

08

4.. fundur

Kynnt fyrir nýjum fulltrúm ungmennaráðsins verkefnið Barnvænt sveitarfélag og staðan á innleiðingu. Ungmennaráðið á fulltrúa í stýrihópi og tók þátt í stöðumati og er virkur þátttakandi í innleiðingu verkefnisins. Mikilvægt er að fá álit, hugmyndir og aðstoð ráðsins við að móta aðgerðaáætlun sem er í smíðum. Stefnt er að því að skila endanlegum drögum um áramót. Einnig rætt um fræðslu til ungmennaráðsfulltrúa varðandi barnasáttmálann og mikilvægt að ungmennaráðið þekki vel til sáttmálans og möguleika í innleiðingu. Umsjónarmaður ungmennaráðs sendir fulltrúm hlekk á fræðslusetur Unicef - Akademias þar sem fulltrúar geta lokið námskeiðum um innleiðingu og barnasáttmála. https://unicef-akademian.teachable.com/ .

Ungmennaráð Garðabæjar

09

4.. fundur

Tillaga að starfsáætlun ungmennaráðs

Lögð fyrir drög að starfsáætlun/fundarramma yfir árið.

Fulltrúar beðnir um að koma með athugasemdir varðandi starfsáætlunina og efnisatriði hennar og hvort það er eitthvað sem þyrfti að bæta við eða breyta. Rætt að hægt væri að hnika tímasetningum en halda sig við áætlunina í helstu efnisatriðum sem tækju til mikilvægra sviða stjórnkerfisins. Kynnt og rætt milli funda. Sjá neðar.