6. fundur
6. fundur
Ungmennaráð Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
02.12.2022
Kl. 15:30 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Valgerður Eyja Eyþórsdóttir
- Askur Hrafn Hannesson
- Íris Lind Steinþórsdóttir
- Anna Kristín Elmarsdóttir
- Heiða Bríet Andradóttir
- Emilía Ósk Hauksdóttir
- Eyþór Elvar Þórarinsson
Starfsmenn
- Tómas Þór Jacobsen
Ritari
- Tómas Þór Jacobsen
Gestur fundarins, Gunnar Richardsson.
Dagskrá
Málsnúmer 2210295
01
Yfirferð starfsáætlunar.
Farið yfir drög ráðsins um starfsáætlun og athugasemdir sem fulltrúar ungmennaráðs höfðu varðandi hana.
Rætt var að færa ungmennaþingið frá febrúar og hafa það í október/nóvember frekar.
Einnig var rætt um að þó svo að til dæmis fundur með bæjarstjórn sé skráður í mars, þá er möguleiki að fá fund með þeim öðrum tíma á árinu ef það kemur upp eitthvað málefni sem fulltrúar brenna fyrir.
Málsnúmer 2210295
02
Yfirferð erindisbréfs.
Farið yfir erindisbréf ungmennaráðs frá 2015 og óskað eftir athugasemdum (með rökstuðningi) hvað er úrelt og hverju má breyta.
M.a. var rætt um að hækka aldur ungmenna í ráðinu upp í 25 ára aldur.
Fulltrúar skoði milli funda.
Málsnúmer 2210295
03
Fræðsla um barnvæn sveitarfélög.
Verkefnið Barnvænt sveitarfélag og þátttaka ungmennaráðs í því.
Gunnar kynnti nýjum fulltrúum fræðsluvef Unicef og óskaði eftir að allir fulltrúar kynntu sér barnasáttmálann og rifji upp t.d. myndband sem útskýrir verkefnið barnvænt sveitarfélag. Öflugt ungmennaráð og hlutverk þess skiptir miklu til þess að innleiðing og verkefnið takist vel.
Fulltrúar setja sér það markmið að klára fræðslunámskeiðið um barnasáttmálann fyrir næsta fund.
Í smíðum er aðgerðaáætlun fyrir BVS. Gunnar kynnti tillögur í aðgerðaáætlun BVS sem eru til að efla ungmennaráðið, tilgang og möguleika til áhrifa.
Málsnúmer 2210295
04
Önnur mál.
Fulltrúi Álftaness ræddi lítið framboð af íþróttavalmöguleikum á Álftanesi fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára. Einungis blak er í boði fyrir þann aldurhóp. Fyrir 12-16 ára stráka er aðeins körfubolti og blak í boði. Unglingum á þessu aldursbili finnst erfitt að hafa aðeins þessa tvo valmöguleika í boði og vilja meiri fjölbreytileika fyrir alla. Það er erfitt fyrir marga að þurfa að taka strætó fram og til baka í Ásgarð nokkrum sinnum í viku.
Samstarf við önnur ungmennaráð.
Fulltrúar voru sammála um að gott væri að hefja samstarf við önnur ungmennaráð í Kraganum, sjá hvað þau eru að gera og læra hvort af öðru. Umsjónarmanni og formanni falið að skoða milli funda.