Vífilsstaðir, staða skipulags.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
10. fundur
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri fóru yfir stöðu skipulagsmála á Vífilsstöðum. Ekkert deiliskipulag er í gildi en svæðið er innan svæðis rammahluta aðalskipulags sem náði til Vífilsstaðalands utan Heiðmerkur. Þar er svæðið í kringum Vífilsstaði (4.01 S) skilgreint sem blönduð byggð stofnana og íbúða með áherslu á heilsutengda starfsemi sem fer vel með núverandi starfsemi Vífilsstaðaspítala. Þar segir ennfremur að byggð skuli taka mið af núverandi byggð og byggingar skulu m.a. ekki vera hærri en núverandi hæð Vífilsstaðaspítala. Austan við svæði 4.01 S er reituri 4.13 íb og þar er gert ráð fyrir lágreistri íbúðarbyggð með hátt hlutfall sérbýlis.
Skipulagsnefnd beinir því til tækni-og umhverfissviðs að vinna minnisblað um stöðu skipulags á Vífilsstöðum og hvaða skref er skynsamlegt að taka á næstu misserum til að móta stefnu um framtíð svæðisins.