Leki í sýningarsal - des 2022
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
01. fundur
Talsverður leki kom upp í sýningarsal safnsins á milli jóla og nýárs. Fresta þurfti opnun og einungis var talið öruggt að setja upp hluta af sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili. Ekki verður hægt að fara í skoðun og varanlegar viðgerðir á þaki fyrr en í vor. Þangað til er frítt inn á safnið. Hvernig vill stjórn bregðast við þessu máli gagnvart leigusala?
í svari frá Regin 22.03 til forstöðumanns kemur fram að fyrirtækið er ekki tilbúið að koma til móts við safnið með niðurfellingu leigu. Fyrirtækið telur að um óverulega áhættu hafi verið að ræða eftir að þak var hreinsað og hita vírar settir í niðurföll. Forstöðumaður bendir á að enga áhættu má taka með safngripi en vatn lak út á gólf og niður úr lofti. Samkvæmt svari frá Regin verða viðgerðir kláraðar í næstu viku. Stjórn felur forstöðumanni að taka saman þann kostnað sem safnið hefur orðið fyrir.