Beint í efni

01. fundur

29.03.2023
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

29.03.2023

Kl. 15:00 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2205001HO

01

Rekstur 2022

Farið yfir rekstrartölur 2022

Rekstur 2022 fór 1% fram úr áætlun. Áætlun var 73.320.019 en rauntölur 74.331.464.

Málsnúmer 2302002HO

02

Leki í sýningarsal - des 2022

Talsverður leki kom upp í sýningarsal safnsins á milli jóla og nýárs. Fresta þurfti opnun og einungis var talið öruggt að setja upp hluta af sýningunni Hönnunarsafnið sem heimili. Ekki verður hægt að fara í skoðun og varanlegar viðgerðir á þaki fyrr en í vor. Þangað til er frítt inn á safnið. Hvernig vill stjórn bregðast við þessu máli gagnvart leigusala?

í svari frá Regin 22.03 til forstöðumanns kemur fram að fyrirtækið er ekki tilbúið að koma til móts við safnið með niðurfellingu leigu. Fyrirtækið telur að um óverulega áhættu hafi verið að ræða eftir að þak var hreinsað og hita vírar settir í niðurföll. Forstöðumaður bendir á að enga áhættu má taka með safngripi en vatn lak út á gólf og niður úr lofti. Samkvæmt svari frá Regin verða viðgerðir kláraðar í næstu viku. Stjórn felur forstöðumanni að taka saman þann kostnað sem safnið hefur orðið fyrir.

Málsnúmer 2010001HO

03

húsnæði öryggismál 2020

Farið yfir stöðu vegna framkvæmda í tengslum við brunavarnir í safninu.

Framkvæmdir vegna brunavarna eru langt komnar en ekki lokið. Ingólfur Benediktsson er umsjónamaður verkefnisins hann ætlar að sjá til þess að verkefnið klárist fljótlega og fá aðila frá slökkviliðinu til að taka húsnæðið út.

Málsnúmer 2302001HO

04

Áherslur stjórnar 2023

Samtal um áherslur stjórnar næstu þrjú árin.

Skipuleggjum viðfangsefni næstu funda hjá stjórn safnsins.

Áherslur stjórnar á árinu verður að vinna í stefnumótun fyrir safnið ásamt húsnæðismálum. Tveir næstu fundir hafa verið teknir frá í þessa vinnu sem verður fylgt eftir með því að taka fyrir og koma áfram skammtímamarkmiðum og leggja drög að langtímamarkmiðum. Áherslur undanfarinna ára hefur verið á að blása lífi í safnið. Nú þarf að leggja áherslu á innviðin svo sem söfnun skráningu skipulagningu og öryggismál í varðveislurými.