Rekstur 2022
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
01. fundur
Farið yfir rekstrartölur 2022
Rekstur 2022 fór 1% fram úr áætlun. Áætlun var 73.320.019 en rauntölur 74.331.464.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
02
04. fundur
Farið yfir rekstrarstöðu safnsins í dag. Farið sérstaklega yfir og borin saman kostnaður við einstakar sýningar. Ath. hver staðan er á fjárhagsáætlun safnsins eftir fyrstu umræðu í bæjarstjórn. Ræddir möguleikar um samstarf við fyrirtæki í tengslum við einstakar sýningar, aðgangseyri og fleira.
Rekstur er á áætlun miðað við að framlag ríkisins berist fyrir lok árs 2022. Til stendur að undirrita samning varðandi framlagið næstu daga. Stjórn er sammála um að láta á það reyna að fá stuðning frá fyrirtækjum í ákveðin verkefni á vegum safnsins.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
03
03. fundur
Farið yfir rekstrartölur.
Engar greiðslur hafa borist frá Menningarmálaráðuneytinu frá því í maí 2022. Það vantar því 6,4m inn í reksturinn miðað við áætlun. Ástæðan er sú að ekki er samningur í gildi milli ráðuneytisins og Garðabæjar. Drög að samningi liggja fyrir en aðilar þurfa að eiga frekara samtal og komast að samkomulagi. Fundur hefur verið boðaður með ráðherra 18. október þar sem þessi mál ættu að skýrast.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
04
02. fundur
Farið yfir stöðu á rekstrarreikningi.
Rekstur er á áætlun. Það sem af er árinu 2022 hafa samtals 934 nemendur heimsótt safnið.