02. fundur
02. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
17.05.2022
Kl. 15:00 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Margrét Gunnlaugsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1903003HO
01
Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands
Farið yfir leigutilboð frá Reginn sem miðar við að húsnæði safnsins verði stækkað til að rýma fasta sýningu og að varðveislurými í kjallara verði yfirfarið og endurnýjað til að tryggja öryggi safngripa.
Stjórn er sammála um að leigutilboð frá Reginn sem miðar við fyrirhugaðar breytingar og endurbætur er sanngjarnt. Ný drög að rekstrarsamningi frá Menningarmálráðuneytinu gera ekki ráð fyrir hærri leigu og því ekki hægt að gera nýjan leigusamning að svo stöddu. Varðveislurými safnsins þarfnast viðhalds og endurnýjunar sem ekki getur beðið mikið lengur ef tryggja á öryggi safngripa.
Málsnúmer 2101007HO
02
Samningar við Menntamálaráðuneytið
Farið yfir drög að nýjum rekstrarsamningi.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands lýsir yfir vonbrigðum með þær viðræður sem hafa átt sér stað um nýjan rekstrar- og uppbyggingarsamning milli ráðuneytis menningarmála og Garðabæjar. Stjórnin lýsir yfir óánægju með tillögu að rekstrarsamningi sem ráðuneytið hefur nú loksins sent sveitarfélaginu. Samningurinn endurspeglar algert skilningsleysi ráðuneytisins gangvart rekstrarhlutverki Hönnunarsafns Íslands og þeirri aðstöðu sem nauðsynleg er til að tryggja öryggi safngripa. Hönnunarsafn Íslands getur ekki uppfyllt skyldur sínar um varðveislu þjóðargersema, safnfræðslu og umfang sem tengist byggingarlistasögu landsins miðað við þær tillögur að fjárveitingum sem fram koma í drögum að samningi.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands er stolt af þeirri vinnu sem unnin hefur verið á safninu undanfarin ár og þeirri ótrúlegu grósku sem endurspeglast í fjölgun gesta og þeim fjölda glæsilegra sýninga og viðburða sem safnið hefur staðið fyrir.
Hönnunarsafn Íslands í Garðbæ á skilið meiri framsýni og meiri metnað af hendi stjórnvalda en þau hafa sýnt hingað til.
Málsnúmer 2202003HO
03
Markaðsmál 2022
Áhersla á að ná til erlendra ferðamanna sumarið 2022. Sigríður kynnir umfjöllun sem þegar hefur átt sér stað. Samtal við stjórn um framhaldið.
Sigríðu kynnir umfjöllun sem þegar hefur átt sér stað um sýninguna Sund á hönnunarmiðlinum dezeen.com og all things Iceland á you tube og instagram. Lögð verður áhersla á að ná til ferðamanna í gegnum samfélgsmiðla sem eru að skipuleggja ferðir til Íslands á næstunni.
Málsnúmer 2205001HO
04
Rekstur 2022
Farið yfir stöðu á rekstrarreikningi.
Rekstur er á áætlun. Það sem af er árinu 2022 hafa samtals 934 nemendur heimsótt safnið.