Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
02. fundur
Linda gerir grein fyrir hvar málið er statt varðandi varðveislurými safnsins eftir fund með ráðuneytinu í apríl.
Bæjarstjóri, Linda Udengard og Lúðvík Örn Steinarsson fóru á fund í Menningar- og viðskiptaráðuneytinu til að ræða framtíðar fjármögnun safnsins og húsnæðismál. Engin niðurstaða fékkst á fundinum en samtalið heldur áfram í haust.
Stjórn og forstöðumaður telja varðveislurými safnsins ekki öruggt til frambúðar aðallega vegna fjölda lagna sem liggja í gegnum rýmið. Á síðustu 7 árum hafa komið upp tveir alvarlegir lekar í kjallaranum og nú skólp upp um niðurföll. Finna þarf leið til að tryggja öruggara og rýmra húsnæði fyrir safnkostinn.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
02
04. fundur
Farið yfir minnisblað varðandi leka í sýningarsal og viðgerðir. Forstöðumaður gerir grein fyrir öryggismálum í varðveislurými.
Farið var yfir minnisblað varðandi ítrekaðan leka í sýningarsal og viðgerðir. Farið var í talsverðar framkvæmdir í sumar þegar Reginn lét laga frágang í kringum niðurföll, samt sem áður lak á einum stað við vesturvegg í ágúst, verið er að skoða það sérstaklega. Fyrir utan þetta virðast viðgerðirnar hafa lagað vandann.
Forstöðumaður gerir grein fyrir öryggismálum í varðveislurými en þar hefur komið upp leki fjórum sinnum á síðustu sex árum. Fjöldi lagna liggur í gegnum rýmið og forstöðumaður og stjórn telja húsnæðið ekki lengur öruggt sem varðveislurými safngripa. Húsnæðið er komið til ára sinna og starfsemi í húsinu flókin og fjölbreytt. Sjá minnisblað. Niðurstaða fundarins er að Garðabær og Menningarmálaráðuneytið verða í sameiningu að finna öruggt húsnæði fyrir safnkostinn innan þriggja ára.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
03
03. fundur
Farið yfir stöðuna varðandi brunamál, geymslur og fyrirhugaða stækkun safnsins. Geymslur skoðaðar.
Árið 2021 gerði Örugg verkfræðistofa úttekt á brunavörnum fyrir safnið. Þá kom í ljós að talsvert vantaði upp á að brunamál væru í lagi í húsnæðinu. Samkvæmt samningi eru þessi mál á höndum leigutaka. Búið er að framkvæma breytingar í smiðju í samræmi við úttektina og einnig á brunahurðum í kjallara en þeirri framkvæmd er ekki lokið. Talsvert vantar enn upp á að úrbótum sé lokið. Safnið fékk sérstaklega úthlutað fjármagni til framkvæmdanna árið 2022 en sökum anna hefur framkvæmda og eignasvið ekki getað sinnt þessum framkvæmdum. Stjórn hefur áhyggjur af stöðunni.
Leigusali húsnæðisins kom til móts við óskir safnsins um að lagfæra um 200 fm hluta af varðveislurými. Óþarfa stokkar, klæðningar og gamlir frystiklefar voru rifnir út, veggir og gólf máluð og ný ljós sett upp, auk niðurfalls í lagnarými. Samkvæmt samningi á Garðabær að sjá um allar breytingar og viðhald innandyra og því vorum við afar þakklát fyrir þetta framtak Regins.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
04
02. fundur
Farið yfir leigutilboð frá Reginn sem miðar við að húsnæði safnsins verði stækkað til að rýma fasta sýningu og að varðveislurými í kjallara verði yfirfarið og endurnýjað til að tryggja öryggi safngripa.
Stjórn er sammála um að leigutilboð frá Reginn sem miðar við fyrirhugaðar breytingar og endurbætur er sanngjarnt. Ný drög að rekstrarsamningi frá Menningarmálráðuneytinu gera ekki ráð fyrir hærri leigu og því ekki hægt að gera nýjan leigusamning að svo stöddu. Varðveislurými safnsins þarfnast viðhalds og endurnýjunar sem ekki getur beðið mikið lengur ef tryggja á öryggi safngripa.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
05
02. fundur
Farið yfir úrbætur og framtíðasýn varðandi húsnæði safnsins í tengslum við endurnýjun á leigusamningi.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands er sammála um að staðsetning safnsins við Garðatorg 1 sé mjög góð. Við torgið er mannlíf, veitingastaðir og næg bílastæði. Stjórn og forstöðumaður sjá fyrir sér að safnið verði staðsett hér áfram og að frekar verði hugsað til úrbóta og jafnvel algerrar umbreytingar á húsnæðinu heldur en að flytja annað eða byggja nýtt. Til skoðunar er að safnið fái um 150 fm til viðbótar. Með þessari viðbót verður möguleiki að ganga í hring um sýningarsali safnsins. Þetta myndi gerbreyta upplifun gesta, skapa svigrúm fyrir fastasýningu og um leið létta á varðveislurými sem er orðið fullt. Í tengslum við endurnýjun á leigusamningi mun Reginn skoða þessar óskir safnsins. Reginn hefur einnig verið send úttekt á brunavörnum sem og skýrslur um nauðsynlegar endurbætur á varðveislurými.
Stækkun og endurbætur munu eflaust speglast í hærra leiguverði. Nú standa yfir viðræður milli Garðabæjar og Menntamálaráðuneytisins um rekstrarframlag og stofnkostnað. Framtíð safnsins er háð þessum samningum.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
06
03. fundur
Staðan á fjölnotarými, atriði varðandi hreinsun og lagfæringar í kjallara.
Staðan á fjölnotarými er sú að Reginn er að endurnýja glugga og mun í framhaldinu mála rýmið, lagfæra rafmagn og setja upp brunahurð. Búið er að hreinsa og lagfæringar rými í kjallara fyrir framan geymslur. Garðabær sá um þær framkvæmdir.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
07
02. fundur
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir leiðir vinnu með stjórn varðandi mismunandi sviðsmyndir af Hönnunarsafni Íslands.
Guðrún Lilja kynnir fyrir stjórn hvernig hún hefur unnið sviðsmyndir og hvernig hún hefur hugsað sér að vinna sviðsmyndir fyrir Hönnunarsafn Íslands í samstarfi við forstöðumann og stjórn.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
08
01. fundur
Staða húsnæðismála rædd.
Geymslur safnsins eru orðnar fullar. Möguleikar ræddir um pláss fyrir fasta sýningu og fjölnota rými.