04. fundur
04. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
25.09.2023
Kl. 13:00 - 14:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Vera Rut Ragnarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2306001HO
01
Stefnumótun 2023 - 2027
Farið yfir stefnumótun 2023 - 2027, hún lagfærð ef þarf og svo samþykkt.
Farið var yfir stefnumótunina og breytingar gerðar. Hún verður ekki samþykkt fyrr en á næsta fundi þegar allir hafa haft tíma til að fara vel yfir.
Málsnúmer 1903003HO
02
Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands
Farið yfir minnisblað varðandi leka í sýningarsal og viðgerðir. Forstöðumaður gerir grein fyrir öryggismálum í varðveislurými.
Farið var yfir minnisblað varðandi ítrekaðan leka í sýningarsal og viðgerðir. Farið var í talsverðar framkvæmdir í sumar þegar Reginn lét laga frágang í kringum niðurföll, samt sem áður lak á einum stað við vesturvegg í ágúst, verið er að skoða það sérstaklega. Fyrir utan þetta virðast viðgerðirnar hafa lagað vandann.
Forstöðumaður gerir grein fyrir öryggismálum í varðveislurými en þar hefur komið upp leki fjórum sinnum á síðustu sex árum. Fjöldi lagna liggur í gegnum rýmið og forstöðumaður og stjórn telja húsnæðið ekki lengur öruggt sem varðveislurými safngripa. Húsnæðið er komið til ára sinna og starfsemi í húsinu flókin og fjölbreytt. Sjá minnisblað. Niðurstaða fundarins er að Garðabær og Menningarmálaráðuneytið verða í sameiningu að finna öruggt húsnæði fyrir safnkostinn innan þriggja ára.
Málsnúmer 2101007HO
03
Samningar við Menntamálaráðuneytið
Linda skýrir frá stöðu varðandi rekstrarsamning við Menningarmálaráðuneytið 2023.
Ekki hefur verið skrifað undir nýjan rekstrarsamning við Menningarmálaráðuneytið. Garðabær telur framlag ríkisins ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til safnsins. Framlag ríkisins árið 2022 var 20m en framlag Garðabæjar 74,3m. Safnið sækir einnig um styrki í samkeppnissjóði.
Í tengslum við nýja Hönnunarstefnu hefur verið samið um 10m framlag til safnsins í 3 ár í tengslum við safnfræðslu. Þetta er ekki hluti af rekstrarsamningi en gerir safninu kleift að sinna safnfræðslu af krafti næstu 3 árin.
Fundað verður með ráðuneytinu í október.
Málsnúmer 2309002HO
04
Dagatal 2023
Farið yfir dagskrá haustsins.
Dagskrá haustins kynnt. Í september opnar Lilý Adamsdóttir veflistakona í vinnustofudvöl. Í október opna fjórar sýningar: Hönnunarsafnið sem heimili (nú í heild sinni eftir viðgerðir á þaki), Dolinda Tanner - keramik og veflistaverk og Lothar Grund - opin skráning á teikningum. Í nóvember er skipulagður fyrirlestrardagur um eldhús og "Heimsókn" á sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili þar sem samskipti heimilisfólks eru til skoðunar. Opnar fjölskyldusmiður eru haldnar fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Móttaka skólahópa er skipulögð í október og nóvember.
Málsnúmer 2309001HO
05
Rekstur 2023
Farið yfir stöðu á rekstrarreikningi.
Rekstur er á áætlun.
Málsnúmer 2309003HO
06
Heimasíða
Ný heimasíða safnsins kynnt.
Ný heimasíða er komin í loftið. Enn eru smá hnökrar sem þarf að lagfæra en loksins er safnið komið með heimasíðu sem endurspeglar starfsemina og er dæmi um spennandi hönnun í vefsíðugerð.