Beint í efni

Samningar við Menntamálaráðuneytið

Málsnúmer 2101007HO

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

03. fundur

Farið yfir stöðu á samningi til næstu tveggja ára og samtal við ráðuneytið varðandi varðveislurými.

Linda greinir frá því að hún og Lúðvík Örn hafi á fundi með Menningarmálaráðuneytinu ítreka þá ósk að ráðuneytið taki þátt í að finna og standa kostnað af öruggu varðveislurými fyrir stóran hluta safnkostsins sem nú er geymdur í kjallara í húsnæði við Garðatorg 1. Ráðuneytið óskar eftir þarfagreiningu sem forstöðumaður mun útbúa og senda á ráðuneytið.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

02

04. fundur

Linda skýrir frá stöðu varðandi rekstrarsamning við Menningarmálaráðuneytið 2023.

Ekki hefur verið skrifað undir nýjan rekstrarsamning við Menningarmálaráðuneytið. Garðabær telur framlag ríkisins ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til safnsins. Framlag ríkisins árið 2022 var 20m en framlag Garðabæjar 74,3m. Safnið sækir einnig um styrki í samkeppnissjóði.

Í tengslum við nýja Hönnunarstefnu hefur verið samið um 10m framlag til safnsins í 3 ár í tengslum við safnfræðslu. Þetta er ekki hluti af rekstrarsamningi en gerir safninu kleift að sinna safnfræðslu af krafti næstu 3 árin.

Fundað verður með ráðuneytinu í október.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

03

04. fundur

Staða samnings við Menningarmálaráðuneytið.

Samningur vegna framlags ríkisins fyrir árið 2022 upp á 20m verður undirritaður næstu daga. Rekstrarsamningur til næstu fjögurra ára er í mótun í samtali við menningar- og viðskiptaráðuneytið. Stefnt er að því að gengið verði frá honum í byrjun árs 2023 og að hann gefi svigrúm í rekstri fyrir vandaða safnfræðslu og að safnið geti safnað og miðla íslenskri byggingarlistasögu en fjármagn hefur skort í þessa málaflokka.

Húsnæðismál safnsin verða tekin fyrir sérstaklega með ráðuneytinu en stjórn safnsins og starfsmenn hafa áhyggjur af varðveislurými safnsins sem þarfnast viðhalds og gagngerra endurbóta. Varðveislurýmið hefur enga hitastýringu og gamlar lagnir valda áhyggjum. Á síðustu fimm árum hefur þrisvar komið upp leki í kjallaranum. Auk þess er varðveislurýmið orðið fullt og finna þarf lausn til framtíðar.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

04

03. fundur

Farið yfir drög að samningi frá Viðskipta og menningarmálaráðuneytinu. Hvað þarf til til þess að safnið geti staðið við samninginn?

Í dag eru einungis tveir starfsmenn í fullu starfi við safnið (safnstjóri og sérfræðingur) og einn í hálfu starfi í móttöku og verslun. Til þess að geta staðið við samninginn eins og hann er lagður fram þyrfti safnið 2,5 starfsgildi til viðbótar. Eitt til að sinna safnfræðslu, eitt til þess að sinna byggingarlistinni og hálft starf til þess að sinna kynningarmálum. Til þess að fullnægja kröfum samningsins um fagmennsku og gæði þarf annaðhvort að fara í algjörar endurbætur á núverandi varðveislurými eða finna nýtt öruggt rými fyrir safngripina. Einnig liggur fyrir að varðveislurýmið er orðið fullt og leigja þarf 300 - 500 fm til viðbótar sem allra fyrst.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

05

02. fundur

Farið yfir drög að nýjum rekstrarsamningi.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands lýsir yfir vonbrigðum með þær viðræður sem hafa átt sér stað um nýjan rekstrar- og uppbyggingarsamning milli ráðuneytis menningarmála og Garðabæjar. Stjórnin lýsir yfir óánægju með tillögu að rekstrarsamningi sem ráðuneytið hefur nú loksins sent sveitarfélaginu. Samningurinn endurspeglar algert skilningsleysi ráðuneytisins gangvart rekstrarhlutverki Hönnunarsafns Íslands og þeirri aðstöðu sem nauðsynleg er til að tryggja öryggi safngripa. Hönnunarsafn Íslands getur ekki uppfyllt skyldur sínar um varðveislu þjóðargersema, safnfræðslu og umfang sem tengist byggingarlistasögu landsins miðað við þær tillögur að fjárveitingum sem fram koma í drögum að samningi.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands er stolt af þeirri vinnu sem unnin hefur verið á safninu undanfarin ár og þeirri ótrúlegu grósku sem endurspeglast í fjölgun gesta og þeim fjölda glæsilegra sýninga og viðburða sem safnið hefur staðið fyrir.
Hönnunarsafn Íslands í Garðbæ á skilið meiri framsýni og meiri metnað af hendi stjórnvalda en þau hafa sýnt hingað til.


Stjórn Hönnunarsafns Íslands

06

01. fundur

Staðan á samningi Menn­ing­ar- og viðskiptaráðuneytið við Garðabæ vegna reksturs og uppbyggingar Hönnunarsafns Íslands.

Samningur Menn­ing­ar- og viðskiptaráðuneytið við Garðabæ vegna reksturs og uppbyggingar Hönnunarsafns Íslands er ekki lokið. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu eru drög að nýjum rekstrarsamningi langt komin.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

07

01. fundur

Eiríkur Björn kynnir stöðuna varðandi samninga við Menntamálaráðuneytið.

Eiríkur átti samtal við Menntamálaráðherra í síðustu viku. Vilji er fyrir að klára mál safnsins á þessu kjörtímabili. Málið varðar aukið framlag ríkisins til resktur Hönnunarsafns Íslands auk leiðréttingar á kostnaði sem hlaust af því þegar fallið var frá áætlun um byggingu safnahúss árið 2008. Ráðuneitinu hafa verið send umbeðin gögn og næsta skref er að starfsmenn ráðuneytisins fara yfir gögnin og í framhaldinu er gert ráð fyrir að gerð verði drög að samningi. Eiríkur hefur sent ráðuneytinu drög til að ýta við þeim.