01. fundur
01. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
26.01.2021
Kl. 15:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2010004HO
01
Dagatal 2021
Forstöðumaður kynnir dagskrá ársins 2021
Forstöðumaður kynnir dagskrá safnsins 2021. Safninu verður áfram skipt í þrjú sýningarrými: Aðal sýningarsal, Safnið á röngunni sem er opið rannsóknarrými og opna vinnustofu hönnuða í anddyri safnsins. Smiðjurými safnsins verður opið almenningi og þar komið fyrir leik- og fræðsluborði tileinkað og innblásið af hugarheimi og verkum Einars Þorsteins Ásgeirssonar (styrkt af Barnamenningarsjóði). Í tengslum við sýningar safnsins fara fram viðburðir og smiðjur af ýmsu tagi. Hönnunarskóli Hönnunarsafnsins í samstarfi við Klifið heldur áfram.
Í samvinnu við Menningarfulltrúa Garðabæjar verðu áfram lögð sérstök áhersla á fræðslu sem felur í sér leiðsögn og vinnustofu fyrir grunnskólabörn. Reiknað er með um 1200 börnum á árinu 2021.
Málsnúmer 2101005HO
02
Rekstur 2020
Rekstur 2020 hefur farið 4% fram úr áætlun.
Málsnúmer 2010005HO
03
Aðsóknartölur 2020
Fjöldi gesta árið 2020 voru 6297
Safnið var lokað í tæpa þrjá mánuði á árinu.
Til samanburðar þá voru gestir árið 2019 7093
Málsnúmer 2101006HO
04
Samvinna við menningarfulltrúa
Ólöf Breiðfjörð kynnir samstarf við safnið varðandi skólaheimsóknir, vetrarhátíð og fleira sem er á döfinni í menningarmálum í Garðabæ.
Ólöf Breiðfjörð kynnir samstarf við safnið og aðrar stofnanir Garðabæjar varðandi skólaheimsóknir, Vetrarhátíð og Barnamenningarhátíð 2021.
Málsnúmer 2010001HO
05
húsnæði öryggismál 2020
Farið yfir skýrslu frá verkfræðistofunni Örugg varðandi brunavarnir.
Samkvæmt niðurstöðum skoðunar og úrbótarlista liggur fyrir gróf kostnaðaráætlun upp á 5m. Það þarf að fara í þessar úrbætur á árinu 2021.
Málsnúmer 2101007HO
06
Samningar við Menntamálaráðuneytið
Eiríkur Björn kynnir stöðuna varðandi samninga við Menntamálaráðuneytið.
Eiríkur átti samtal við Menntamálaráðherra í síðustu viku. Vilji er fyrir að klára mál safnsins á þessu kjörtímabili. Málið varðar aukið framlag ríkisins til resktur Hönnunarsafns Íslands auk leiðréttingar á kostnaði sem hlaust af því þegar fallið var frá áætlun um byggingu safnahúss árið 2008. Ráðuneitinu hafa verið send umbeðin gögn og næsta skref er að starfsmenn ráðuneytisins fara yfir gögnin og í framhaldinu er gert ráð fyrir að gerð verði drög að samningi. Eiríkur hefur sent ráðuneytinu drög til að ýta við þeim.