Beint í efni

Dagatal 2021

Málsnúmer 2010004HO

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

01. fundur

Forstöðumaður kynnir dagskrá ársins 2021

Forstöðumaður kynnir dagskrá safnsins 2021. Safninu verður áfram skipt í þrjú sýningarrými: Aðal sýningarsal, Safnið á röngunni sem er opið rannsóknarrými og opna vinnustofu hönnuða í anddyri safnsins. Smiðjurými safnsins verður opið almenningi og þar komið fyrir leik- og fræðsluborði tileinkað og innblásið af hugarheimi og verkum Einars Þorsteins Ásgeirssonar (styrkt af Barnamenningarsjóði). Í tengslum við sýningar safnsins fara fram viðburðir og smiðjur af ýmsu tagi. Hönnunarskóli Hönnunarsafnsins í samstarfi við Klifið heldur áfram.
Í samvinnu við Menningarfulltrúa Garðabæjar verðu áfram lögð sérstök áhersla á fræðslu sem felur í sér leiðsögn og vinnustofu fyrir grunnskólabörn. Reiknað er með um 1200 börnum á árinu 2021.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

02

4. fundur

Farið yfir dagskrá safnsins 2021.

Farið yfir dagskrá safnsins 2021. Sýningin 100% ULL hefur verið framlengd til 31. jan.