4. fundur
4. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
á fjarfundi
03.11.2020
Kl. 15:00 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ólöf Hulda Breiðfjörð
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2021
Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2021. Einnig farið yfir rekstur jan - sep 2020.
Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2021. Sótt er um aukafjármagn til að klára fjölnotarými safnsins, heimasíðu og starfsgildi v. safnafræðslu og markaðsmála. Rekstur er á áætlun.
02
Dagatal 2021
Farið yfir dagskrá safnsins 2021.
Farið yfir dagskrá safnsins 2021. Sýningin 100% ULL hefur verið framlengd til 31. jan.
03
Aðsóknartölur 2020
Farið yfir aðsóknartölur fyrir fyrstu 9 mánuði ársins.
Sérstaklega verður kynnt átak í skólaheimsóknum.
Fjöldi gesta fyrstu 9 mánuði árisns voru 5349. Ath að safnið var lokað í 6 vikur á þessu tímabili. Búið var að bóka um 800 grunnskólanemendur í heimsókn á sýninguna 100% ULL. Rúmlega 100 nemendur náður að koma áður en safninu var lokað vegna covid19.
04
húsnæði öryggismál 2020
Ráðinn hefur verið brunahönnuður til að fara yfir og gera aðgerðar- og kostnaðaráætlun v. öryggismála safnsins.
Samið hefur verið við verkfræðistofuna Örugg til að fara yfir og gera aðgerðar- og kostnaðaráætlun v. öryggismála safnsins. Úttektin kostar 315.000. Einnig er til skoðunar hvernig leysa megi loftræstimál í geymslum safnsins.
05
Stafræn tilvist safnsins
Kynnt fyrir stjórn: Markmið, áherslur og framkvæmd í stafrænum rýmum safnsins. Þ.e. heimasíðu, fésbókarsíðu, instagram og google maps.
Kynnt fyrir stjórn: Markmið, áherslur og framkvæmd í stafrænum rýmum safnsins. Þ.e. heimasíðu, fésbókarsíðu, instagram og google maps.
Vegna lokana og fjöldatakmarkana hafa stafræn rými safnsins fengið aukið vægi.
06
Markaðsmál 2020
Almenn umræða um markaðsmál safnsin. Lesið yfir fundargerð og hún staðfest.
Almenn umræða um markaðsmál safnsin.