Beint í efni

húsnæði öryggismál 2020

Málsnúmer 2010001HO

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

01. fundur

Farið yfir stöðu vegna framkvæmda í tengslum við brunavarnir í safninu.

Framkvæmdir vegna brunavarna eru langt komnar en ekki lokið. Ingólfur Benediktsson er umsjónamaður verkefnisins hann ætlar að sjá til þess að verkefnið klárist fljótlega og fá aðila frá slökkviliðinu til að taka húsnæðið út.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

02

04. fundur

Farið yfir stöðuna á framkvæmdum vegna brunavarna.

Á árinu fékk safnið úthlutað fjármagni frá Garðabæ til þess að fara í endurbætur samkvæmt úttekt á brunavörnum frá verkfræðistofunni Örugg. Erfiðlega hefur gegnið að fá þessu framfylgt þar sem starfsmenn eignaumsjónar bæjarins hafa ekki haft svigrúm til þess að sinna verkefninu. Guðbjörg Brá sviðstjóri umhverfissviðs hefur fullvissað forstöðumann um að framkvæmdum verði lokið í desember.

Í sumar lagði fasteignafélagið Reginn fram vinnu og efni við endurbætur á um 250 fm hluta af varðveislurými safnsins. Gamlir kæliklefar voru fjarlægðir, raflagnir endurnýjaðar, bætt við niðurfalli, rýmið hreinsað og málað og farið yfir lagnir í rýminu. Þessar endurbætur eru til mikilla bóta en samkvæmt samningi á leigutaki að sjá um allt viðhald innandyra. Fasteignafélagið á því þakkir skilið.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

03

01. fundur

Farið yfir skýrslu frá verkfræðistofunni Örugg varðandi brunavarnir.

Samkvæmt niðurstöðum skoðunar og úrbótarlista liggur fyrir gróf kostnaðaráætlun upp á 5m. Það þarf að fara í þessar úrbætur á árinu 2021.

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

04

4. fundur

Ráðinn hefur verið brunahönnuður til að fara yfir og gera aðgerðar- og kostnaðaráætlun v. öryggismála safnsins.

Samið hefur verið við verkfræðistofuna Örugg til að fara yfir og gera aðgerðar- og kostnaðaráætlun v. öryggismála safnsins. Úttektin kostar 315.000. Einnig er til skoðunar hvernig leysa megi loftræstimál í geymslum safnsins.