Beint í efni

03. fundur

23.10.2024
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

03. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

23.10.2024

Kl. 15:00 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Linda Udengård - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2410001HO

01

Ársskýrsla 2023

Farið yfir ársskýslu 2023.

Það sem helst stóð upp úr á árinu 2023 er ný grunnsýning, ný heimasíða og samningur við Menningar- og viðskiptaráðuneytið um safnfræðslu til næstu þriggja ára upp á samtals 30m.

Mikið átak var gert í skráningu safnmuna.

Heildarfjöldi gesta var 9.447 (voru 8.742 árið 2022 og 10.209 árið 2021)

Samtals voru haldnir 38 viðburðir sem 1.471 gestir sóttu.

Samtals voru opnaðar 10 sýningar í safnhúsinu við Garðatorg.

Ein sýning ferðaðist til Nordatlantes Brygge í Kaupmannahöfn.

Sýningin Fertile Soil í Retreat hótelinu í Bláa lóninu var tekin niður með hraði tveimur dögum fyrir gos.

Safnið var samstarfsaðili að bókinni Sund sem kom út í kjölfar sýningarinnar Sund.

Rekstur var á áætlun.

Málsnúmer 2410003HO

02

Fjárhagsáætlun 2025

Farið yfir fjárhagsáætlun 2025.

'Aætlun samþykkt

Málsnúmer 2402003HO

03

Dagatal 2024

Farið yfir haustdagskrá, sýningar sem hafa opnað og það sem er framundan.

Sýningar á Pallinum:

Ull í samstarfi við Testílfélagið 06.09 - 27.10

Heimilistextíll í samstarfi við Textílfélagið 08.11 - 29.12

Vinnustofudvöl:

Unnar Ari, grafískur hönnuður með verkefnið Sundform 27.09 - 29.12

Heimsókn inn í föstu sýningu safnsins:

Örverur á heimilinu í samstarfi við Þjóðfræðideild HÍ 27.09 - 17.11

Safnið á röngunni:

Skránig á verkum Gísla B. Björnssonar 01.07 - 29.09

Viðburðir:

Það jafnast ekkert á við brauð 05.10

Fjölskyldusmiðja / Bangsastóll 06.10

Opnun á sýningunni Örverur á heimilinu 27.09

Örveru fyrirlestrar, smiðjur og smakk 10.10

Leiðsögn með dansdæmum 20.10

Fjölskyldusmiðja / Ullarkórónur 03.11

Opnun á sýningunni Heimilistextíll 08.11

Lærðu að baka súrdeigsbrauð 17.11

Órói aðventusmiðja fyrir fjölskyldur 30.11

Fjölskyldusmiðja / Piparkökuarkitektúr 01.12

Jólakortaskrif 04.12

Uppskeruhátíð hjá Unnari Ara 05.12

Fjölskyldusmiðja / Áramótahattar 29.12





Málsnúmer 2211003HO

04

Söfnunarstefna

Ekki tekið fyrir þar sem þessi vinna er ekki komin í gang.

Málsnúmer 2101007HO

05

Samningar við Menntamálaráðuneytið

Farið yfir stöðu á samningi til næstu tveggja ára og samtal við ráðuneytið varðandi varðveislurými.

Linda greinir frá því að hún og Lúðvík Örn hafi á fundi með Menningarmálaráðuneytinu ítreka þá ósk að ráðuneytið taki þátt í að finna og standa kostnað af öruggu varðveislurými fyrir stóran hluta safnkostsins sem nú er geymdur í kjallara í húsnæði við Garðatorg 1. Ráðuneytið óskar eftir þarfagreiningu sem forstöðumaður mun útbúa og senda á ráðuneytið.