Beint í efni

01. fundur

16.02.2022
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

16.02.2022

Kl. 16:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Margrét Gunnlaugsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2111001HO

01

Rekstur 2021

Farið yfir rekstrartölur ársins 2021

Rekstur Hönnunarsafns Íslands árið 2021 fór 1% fram úr áætlun.

Áætlun var 68.020.226

Lokaniðurstaða var 68.757.703

Mismunur 737.477

Málsnúmer 2101007HO

02

Samningar við Menntamálaráðuneytið

Staðan á samningi Menn­ing­ar- og viðskiptaráðuneytið við Garðabæ vegna reksturs og uppbyggingar Hönnunarsafns Íslands.

Samningur Menn­ing­ar- og viðskiptaráðuneytið við Garðabæ vegna reksturs og uppbyggingar Hönnunarsafns Íslands er ekki lokið. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu eru drög að nýjum rekstrarsamningi langt komin.

Málsnúmer 2202001HO

03

Dagatal 2022

Farið yfir dagskrá safnsins árið 2022

Farið yfir dagskrá safnsins fyrir árið 2022.

Sýningin SUND stendur til 23. október í aðal sýningarsal safnsins. Önnur hæð safnsins verður lokuð í nóvember og desember vegna uppsetningar á fastri sýningu sem opnar í janúar 2023 og ber heitið "Hönnunarsafnið sem heimili".









Málsnúmer 2202003HO

04

Markaðsmál 2022

Gera raunhæfa áætlun sem miðar sérstaklega að því að kynna safnið fyrir ferðamönnum.

Ákveðið að finna aðila til þess að gera og framkvæma áætlun sem miðar sérstaklega að því að kynna safnið fyrir ferðamönnum.

Málsnúmer 2204320

05

Endurráðning forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands

Ráðningarsamningur forstöðumanns.

Stjórn upplýst um að ráðningarsamningur forstöðumanns Hönnunarsafns renni út í apríl 2022. Fyrirhugað er að endurnýja samning. Sigríður Sigurjónsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.