Beint í efni

03. fundur

19.09.2022
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

03. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

19.09.2022

Kl. 14:00 - 16:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Þóra Sigurbjörnsdóttir
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2205001HO

01

Rekstur 2022

Eiríkur B. Björgvinsson forfallaðist og var ekki á fundinum.

Farið yfir rekstrartölur.

Engar greiðslur hafa borist frá Menningarmálaráðuneytinu frá því í maí 2022. Það vantar því 6,4m inn í reksturinn miðað við áætlun. Ástæðan er sú að ekki er samningur í gildi milli ráðuneytisins og Garðabæjar. Drög að samningi liggja fyrir en aðilar þurfa að eiga frekara samtal og komast að samkomulagi. Fundur hefur verið boðaður með ráðherra 18. október þar sem þessi mál ættu að skýrast.

Málsnúmer 2209002HO

02

Fjárhagsáætlun 2023

Farið yfir drög að fjárhagsáætlun 2023

Farið yfir drög að fjárhagsáætlun 2023. Strax eftir fundinn mun Sigríður senda endanlega áætlun á stjórn til samþykktar.

Málsnúmer 1808001HO

03

Aðsóknartölur

Eiríkur forfallaðist of var ekki á fundinum

Farið yfir aðsóknartölur.

Fjöldi gesta það sem af er árinu eru 7103. Safnið var lokað í janúar vegna COVID.

Málsnúmer 1903003HO

04

Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands

Farið yfir stöðuna varðandi brunamál, geymslur og fyrirhugaða stækkun safnsins. Geymslur skoðaðar.

Árið 2021 gerði Örugg verkfræðistofa úttekt á brunavörnum fyrir safnið. Þá kom í ljós að talsvert vantaði upp á að brunamál væru í lagi í húsnæðinu. Samkvæmt samningi eru þessi mál á höndum leigutaka. Búið er að framkvæma breytingar í smiðju í samræmi við úttektina og einnig á brunahurðum í kjallara en þeirri framkvæmd er ekki lokið. Talsvert vantar enn upp á að úrbótum sé lokið. Safnið fékk sérstaklega úthlutað fjármagni til framkvæmdanna árið 2022 en sökum anna hefur framkvæmda og eignasvið ekki getað sinnt þessum framkvæmdum. Stjórn hefur áhyggjur af stöðunni.

Leigusali húsnæðisins kom til móts við óskir safnsins um að lagfæra um 200 fm hluta af varðveislurými. Óþarfa stokkar, klæðningar og gamlir frystiklefar voru rifnir út, veggir og gólf máluð og ný ljós sett upp, auk niðurfalls í lagnarými. Samkvæmt samningi á Garðabær að sjá um allar breytingar og viðhald innandyra og því vorum við afar þakklát fyrir þetta framtak Regins.

Málsnúmer 2209001HO

05

Kynningarmál safnsins - heimasíða

Staðan á nýju heimasíðu safnsins kynnt.

Þóra Sigurbjörnsdóttir kynnti nýja heimasíðu sem er í bígerð. Síðan býður upp á mun þægilegra aðgengi að upplýsingum um starfsemi safnsins og er hönnuð í sama útliti og allar merkingar og kynningarefni safnsins. Síðan verður safninu til sóma.

Málsnúmer 1810001HO

06

Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2019 - 2023

Hvað hefur virkað vel sl. 4 ár í starfsemi safnsins. Lítum til næstu fjögurra ára.

Göngum í gegnum sýninguna Sund og næsta sýning kynnt "Hönnunarsafnið sem heimili".

Vinnustofudvöl hönnuða hefur verið gefandi fyrir gesti, starfsfólk og hönnuðina sem taka þátt.

Safnið á röngunni þar sem rannsóknir fara fram hefur virkað vel og lífgað upp á safnið.

Stafræn rými hafa lifnað við sem skilar sér í auknum fjölda gesta á safnið sjálft

Síðustu sýningar, 100% Ull, Deiglumór og Sund hafa tekist vel.

Vandaðar útgáfur bóka í tengslum við sýningarnar Deiglumór og Kristín Þorkelsdóttir bæta miklu við gildi sýninganna og lifa áfram.

Tilnefning til safnaverðlauna var mikilvæg hvatning fyrir safnið og starsfólk

Safnfræðsla hefur eflst í samstarfi við menningarfulltrúa bæjarins. 2019 heimsóttu 455 grunnskólabörn safnið og 2021 voru þau 980.

Smiðjan, nýtt rými á annarri hæð, hefur opnað möguleika aðallega fyrir skólaheimsóknir og fjölskyldusmiðjur.

Það hefur tekist að skapa góðan anda í safninu og út á við

Viðburðir hafa tekist vel

Þegar við lítum til næstu fjögurra ára viljum við byggja á því sem hefur tekist vel an taka verður tillit til þess að starfsgildi eru einungis 2,55.

Við höfum verið að styrkja starf safnsins út á við en nú er komin tími til að sinn innviðum betur. Safneignin verur í forgangi næstu árin, hún þarf að vera í öruggu hentugu húsnæði, skráning þarf að komast á skrið, frágangur, pökkun og forvarsla verður einnig hluti af þessari vinnu.

Málsnúmer 2101007HO

07

Samningar við Menntamálaráðuneytið

Farið yfir drög að samningi frá Viðskipta og menningarmálaráðuneytinu. Hvað þarf til til þess að safnið geti staðið við samninginn?

Í dag eru einungis tveir starfsmenn í fullu starfi við safnið (safnstjóri og sérfræðingur) og einn í hálfu starfi í móttöku og verslun. Til þess að geta staðið við samninginn eins og hann er lagður fram þyrfti safnið 2,5 starfsgildi til viðbótar. Eitt til að sinna safnfræðslu, eitt til þess að sinna byggingarlistinni og hálft starf til þess að sinna kynningarmálum. Til þess að fullnægja kröfum samningsins um fagmennsku og gæði þarf annaðhvort að fara í algjörar endurbætur á núverandi varðveislurými eða finna nýtt öruggt rými fyrir safngripina. Einnig liggur fyrir að varðveislurýmið er orðið fullt og leigja þarf 300 - 500 fm til viðbótar sem allra fyrst.