Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2019 - 2023
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
03. fundur
Hvað hefur virkað vel sl. 4 ár í starfsemi safnsins. Lítum til næstu fjögurra ára.
Göngum í gegnum sýninguna Sund og næsta sýning kynnt "Hönnunarsafnið sem heimili".
Vinnustofudvöl hönnuða hefur verið gefandi fyrir gesti, starfsfólk og hönnuðina sem taka þátt.
Safnið á röngunni þar sem rannsóknir fara fram hefur virkað vel og lífgað upp á safnið.
Stafræn rými hafa lifnað við sem skilar sér í auknum fjölda gesta á safnið sjálft
Síðustu sýningar, 100% Ull, Deiglumór og Sund hafa tekist vel.
Vandaðar útgáfur bóka í tengslum við sýningarnar Deiglumór og Kristín Þorkelsdóttir bæta miklu við gildi sýninganna og lifa áfram.
Tilnefning til safnaverðlauna var mikilvæg hvatning fyrir safnið og starsfólk
Safnfræðsla hefur eflst í samstarfi við menningarfulltrúa bæjarins. 2019 heimsóttu 455 grunnskólabörn safnið og 2021 voru þau 980.
Smiðjan, nýtt rými á annarri hæð, hefur opnað möguleika aðallega fyrir skólaheimsóknir og fjölskyldusmiðjur.
Það hefur tekist að skapa góðan anda í safninu og út á við
Viðburðir hafa tekist vel
Þegar við lítum til næstu fjögurra ára viljum við byggja á því sem hefur tekist vel an taka verður tillit til þess að starfsgildi eru einungis 2,55.
Við höfum verið að styrkja starf safnsins út á við en nú er komin tími til að sinn innviðum betur. Safneignin verur í forgangi næstu árin, hún þarf að vera í öruggu hentugu húsnæði, skráning þarf að komast á skrið, frágangur, pökkun og forvarsla verður einnig hluti af þessari vinnu.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
02
04. fundur
Farið yfir stefnumótun safnsins og aðgerðaráætlun. Hvað höfum við komist yfir á árinu 2019. Farið yfir áherslur ársins 2020.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
03
03. fundur
Farið yfir stefnumótun safnsins og aðgerðaráætlun.
Því miður gafst ekki tími á fundinum til þess að fara yfir þennan lið.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
04
01. fundur
Fara yfir stefnumótun og forgangsraða
Farið yfir stefnumótun safnsins og forgangsraðað.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
05
5. fundur
Samþykkja fundargerð síðasta fundar
Unnið áfram í stefnumótun stjórnar.
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
06
4. fundur
Samþykkja fundargerð síðasta fundar
Unnið var í stefnumótun fyrir safnið 2019 - 2023 ásamt SVOT greiningu og fyrstu drögum að aðgerðaráætlun. Vinnan gekk vel en er ekki lokið.
Fundargerð samþykkt frá síðasta fundi.