04. fundur
04. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
25.11.2019
Kl. 12:00 - 13:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Þóra Sigurbjörnsdóttir
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1905001HO
01
Rekstur 2019
Farið yfir stöðu reksturs sem og umsóknir um aukafjármagn árið 2020 varðandi heimasíðugerð, fjölnotarými og stöðugildi í safnafræðslu. Farið yfir samskipti við Menntamálráðuneytið varðandi rekstur og samning við safnið.
Rekstur er á áætlun. Beðið er eftir niðurstöðum varðandi aukafjármagn í heimasíðugerð, fjölnotarými og stöðugildi í safnafræðslu. Farið yfir samskipti við Menntamálráðuneytið varðandi rekstur og samning við safnið, ekkert nýtt hefur komið fram en Eiríkur mun nú fylgja því eftir.
Málsnúmer 1911001HO
02
Markaðsmál 2020
Markaðsmál safnsins og samanburður við önnur söfn.
Markaðsmál safnsins og samanburður við önnur söfn, innlend og erlend, skoðuð. Markaðsmálin þurfa að fá meira vægi. Það gerist meðal annars með nýrri og betri heimasíðu sem til stendur að gera. Einnig verður á næsta ári lögð meiri áhersla á að kynna safnið fyrir ferðamönnum.
Málsnúmer 1810001HO
03
Stefnumótun stjórnar Hönnunarsafns Íslands 2019 - 2023
Farið yfir stefnumótun safnsins og aðgerðaráætlun. Hvað höfum við komist yfir á árinu 2019. Farið yfir áherslur ársins 2020.
Málsnúmer 1903001HO
04
Aðsóknartölur 2019
Farið yfir aðsóknartölur 2019
Farið yfir aðsóknartölur 2019.
Málsnúmer 1908003HO
05
Íslensk Myndmálssaga Safnið á Röngunni Sérsýningar
Íslensk Myndmálssaga, rannsóknarverkefni, skráning og sýning kynnt.
Íslensk Myndmálssaga, rannsóknarverkefni, skráning og sýning kynnt.
Málsnúmer 1908004HO
06
Viðburðir 2019
Farið yfir viðburði safnsins fram að áramótum.
Farið yfir viðburði safnsins fram að áramótum.Fjöldi viðburða á árinu voru 33.