02. fundur
02. fundur
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Hönnunarsafn Íslands
10.03.2020
Kl. 10:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stella Stefánsdóttir - formaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
- Þóra Sigurbjörnsdóttir
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Sigríður Sigurjónsdóttir
Dagskrá
01
Rekstur 2019
Farið yfir rekstrartölur fyrir árið 2019
Rekstur safnsis árið 2019 fór 1% fram úr áætlun.
02
Aðsóknartölur
Farið yfir aðsókn á árinu 2019 og aðgangseyrir á safnið tekinn til endurskoðunar.
Á árinu 2019 heimsóttu 7100 gestir safnið. Ákvörðun var tekin um að breyta ekki aðgangseyri að svo stöddu.
03
Fjölnotarými
farið yfir stöðu á framkvæmdum í fjölnotarými.
Farið yfir stöðu á framkvæmdum í fjölnotarými. Reginn hefur samþykkt að endurnýja glugga, rífa niður vegg, opna rýmið fram á gang, mála og lagfæra tölvu og raflagnir. Þessum framkvæmdum á að vera lokið í lok júní.
04
Markaðsmál 2020
Áhersla í markaðsmálum árið 2020.
Ákveðið hafði verið að leggja áherslu á markaðssetningu til erlendra ferðamanna á árinu 2020. Fylgst verður með framvindu mála varðandi Covid og ferðamenn á Íslandi varðandi þetta atriði.
05
Dagatal Hönnunarsafn 2020
Farið yfir sýningaráætlun fyrir árið 2020 og 2021
Farið var yfir dagatal safnsins, viðburði og sýningar.
06
Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir leiðir vinnu með stjórn varðandi mismunandi sviðsmyndir af Hönnunarsafni Íslands.
Guðrún Lilja kynnir fyrir stjórn hvernig hún hefur unnið sviðsmyndir og hvernig hún hefur hugsað sér að vinna sviðsmyndir fyrir Hönnunarsafn Íslands í samstarfi við forstöðumann og stjórn.