Beint í efni

03. fundur

08.06.2020
Stjórn Hönnunarsafns Íslands

03. fundur

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

Hönnunarsafn Íslands

08.06.2020

Kl. 10:00 - 11:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stella Stefánsdóttir - formaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Sigríður Sigurjónsdóttir - forstöðumaður
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Sigríður Sigurjónsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2003002HO

01

Dagatal Hönnunarsafn 2020

Farið yfir sýningar og viðburði 2020 - 2022

Ársskýrsla 2019 afhent.

Farið yfir sýningar og viðburði 2020 - 2022

Ársskýrsla 2019 afhent.

Málsnúmer 1903003HO

02

Húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands

Staðan á fjölnotarými, atriði varðandi hreinsun og lagfæringar í kjallara.

Staðan á fjölnotarými er sú að Reginn er að endurnýja glugga og mun í framhaldinu mála rýmið, lagfæra rafmagn og setja upp brunahurð. Búið er að hreinsa og lagfæringar rými í kjallara fyrir framan geymslur. Garðabær sá um þær framkvæmdir.

Málsnúmer 1911001HO

03

Markaðsmál 2020

Stafræn tilvist safnsins skoðuð. Aðgangseyrir ræddur með tilliti til markaðssetningar. Markaðsmál almennt, hvernig má vinna þau markvissara.

Ákveðið var að stefna að því hafa frítt inn á safnið á meðan sýningin 100% ULL stendur yfir. Þetta er gert í til kynningar á safninu.

Stafræn tilvist safnsin skiptist í þrennt instagram (áhersla á daglegt starf safnsins), facebook (áhersla á sýningar, viðburði, umræðu og söfnun) og heimasíða safnsins sem nú er í endurskoðun.

Málsnúmer 1908001HO

04

Hönnunarskóli Hönnunarsafns Íslands

Hvernig tókst til og hvað er framundan?

Nemendur skólans voru ánægðir með námskeiðið sem hefur verið endurskoðað í samtali við þau. Boðið verður upp á námskeiðið aftur í haust í samstarfi við Klifið.

Málsnúmer 2003001HO

05

Rekstur 2019

Lúðvík Hjalti Jónsson fer yfir rekstrarfyrirkomulag safnsin.

Þessi liður féll niður