Ásgarður Garðaskóli - Umsókn um byggingarleyfi Kennslustofur A
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
6. (2059). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að staðsetja færanlegar kennslustofur tímabundið á lóð Garðaskóla.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
2. fundur
Lögð fram umsókn Umhverfissviðs um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sem nær til lóðar Garðaskóla. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að eftirfarandi ákvæðum er bætt við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta svæði utan sem innan byggingarreits sem stæði fyrir færanlegar kennslustofur til bráðabirgða á meðan unnið er að endurbótum skólabygginga sem eru nauðsynlegar vegna mygluvandamála sem bregðast þarf við." Skipulagsstjóri samþykkir deiliskipulagsbreytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Með vísan í 2.ml.3.mgr.44.gr. ofangreindra laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.