Beint í efni

Friðarvellir 1 - samningur um lóðaúthlutun fyrir meðferðarheimili.

Málsnúmer 2306167

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. (2207). fundur

Lagður fram samningur um úthlutun lóðar fyrir meðferðarheimili að Friðarvöllum. Um er að ræða um 10.000 fermetra lóð þar sem rísa mun um 1.300 fermetra hús. Jafnframt lagður fram makaskiptasamningur um Spítalaveg 2 og afsal fyrir sömu eign.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita úthlutunarsamning um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir hönd Garðabæjar. Þá felur bæjarráð sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita makaskiptasamning og afsal fyrir Spítalaveg 2.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

5. (2200). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna byggingarréttar og gatnagerðargjalda Meðferðarheimilis að Friðarvöllum 1.

Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að ganga til samninga við Fjármála- og efnahagsráðuneytið um makaskipti og afsal vegna byggingaráforma Meðferðarheimilis að Friðarvöllum 1, þ.a. ríkið afsali sér Spítalavegi 2 (Sunnuhvoli) til Garðabæjar sem endurgjald lóðarinnar Friðarvelli 1, með byggingarheimildum. Jafnframt felur bæjarráð umhverfissviði að hefja undirbúning gatnagerðarframkvæmda vegna byggingaráformanna.