Bréf innviðaráðuneytisins varðandi hvatningu til sveitarstjórna um mótun málstefnu, dags. 05.09.23.
Málsnúmer 2309113
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
34. (2087). fundur
Lagt fram bréf innviðaráðuneytis þar sem fram kemur hvatning til sveitarfélaga að setja sér málstefnu í samræmi við ákvæði 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 18. ágúst 2022 samþykkti bæjarstjórn tillögu bæjarfulltrúa, Þorbjargar Þorvaldsdóttur, um að hefja vinnu við gerð málstefnu fyrir Garðabæ í samstarfi við Íslenska málnefnd.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um að unnið verði að gerð draga að málstefnu fyrir Garðabæ sem lögð verði fram til afgreiðslu í bæjarráði eins fljótt og unnt er.