Vorbraut 19 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
15. fundur
Samkvæmt framlagðri tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem nær til fjölbýlishúslóða norðan Vorbrautar þá gerir tillagan ekki ráð fyrir fjölgun íbúða. Á fjölbýlishúsalóðum fyrir F-4 skulu bílastæði umfram þau sem sýnd eru sem leiðbeinandi á uppdrætti vera innan byggingarreits kjallara eða jarðhæðar. Ekki verður heimilað að gera kjallara fyrir aðra notkun en bifreiðargeymslur.
Skipulagsnefnd hefur vísað framlagðri tillögu að uppfærðu deiliskipulagi Hnoðraholts norður til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu fjölbýlishúsalóðarinnar Vorbraut 19 sem myndi m.a. gera ráð fyrir fjölgun íbúða um tvær og fjölgun bílastæða á lóð sem þeim nemur. Einnig gerir útfærsla ráð fyrir kjallara fyrir geymslur o.þ.h.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir athugun á heildaráhrifun og fordæmisgildi fjölgunar íbúða.
Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags sem nær til allra fjölbýlishúsalóða við Vorbraut.