Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2024-2033.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
2. (935). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára. Bæjarstjóri þakkaði þeim starfsmönnum sem komið hafa að vinnu við uppfærslu áætlunarinnar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun
„Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans ítreka þá skoðun sína að áætlanir um húsnæðisuppbyggingu ættu að gera ráð fyrir því að allt að 30% nýs húsnæðis í Garðabæ á næstu tíu árum verði hagkvæmt húsnæði, t.d. leiguhúsnæði á vegum óhagnaðardrifinna félaga og hlutdeildarlánaíbúðir, og þar af 5% félagslegar leiguíbúðir. Það er skoðun okkar að Garðabær verði að taka ábyrgð á ástandinu á húsnæðismarkaði til jafns við önnur sveitarfélög og bjóða upp á fjölbreyttari valkosti sem henta fleiri tekjuhópum. Við sitjum því hjá, með von um að áætlunin taki breytingum við næstu endurskoðun.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í húsnæðisáætlun Garðabæjar 2024-2033 endurspeglast áhersla á að uppbygging Garðabæjar verði jöfn og stöðug. Þá er ljóst að framboð íbúða í Garðabæ hefur verið nægt og svo verður áfram. Garðabær hefur lagt mun meira til íbúðauppbyggingar á undanförnum árum en nánast öll önnur sveitarfélög, sem sést vel á íbúaþróun. Áhersla er á að uppbygging hagkvæmra íbúða eigi sér stað, bæði hvað varðar leiguúrræði og séreign. Þá er rétt að geta þess að innviðir munu mæta vel þeirri þörf sem framundan.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju.
Björg Fenger, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum uppfærslu húsnæðisáætlunar Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lög um húsnæðismál nr. 44/1998. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Sara Dögg Svanhildardóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
4. (2105). fundur
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfissviði mætti á fund bæjarráðs og fór yfir húsnæðisáætlun Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
Áætlunin byggir á almennum upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og upplýsingum frá Garðabæ sem færðar hafa verið í starfrænt áætlunarkerfi HMS.
Gerð hefur verið greining um þörf fyrir íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu með tilliti til mismunandi búsetuforma. Við greininguna skal m.a. skoða framboð og eftirspurn eftir mismunandi búsetuformum og hvort jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði. Þá skal meta þörf fyrir húsnæði til að mæta þörfum einstakra hópa s.s. fatlaðs fólks, eldri borgara, tekju- og eignaminni og námsmanna, auk húsnæðisþarfar á almennum markaði.
Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar 2024 - 2033 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
2. (2103). fundur
Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2033)
Áætlunin byggir á almennum upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og upplýsingum frá Garðabæ sem færðar hafa verið í starfrænt áætlunarkerfi HMS.
Bæjarstjóri fór yfir helstu forsendur, lykiltölur og áætlun um íbúðaþörf til tíu ára.
Málið verður á dagskrá á næsta fundar bæjarráðs þegar fyrir liggur endanleg áætlun eftir yfirferð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.