Skerpluholt 7 - Breyting bílastæði - -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir tilfærslu á bílastæðum innan lóðar að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.ml.3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (935). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er varðar lóðina við Skerpluholt 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í tilfærslu á bílastæðum innan lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Skerpluholt 4, 5, 6, og 7 og við Vorbraut 12 og 14. (Mál nr. 2312388)
Bæjarráð Garðabæjar
05
3. (2104). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er varðar lóðina við Skerpluholt 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í tilfærslu á bílastæðum innan lóðar. Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum við Skerpluholt 4, 5, 6, og 7 og við Vorbraut 12 og 14.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Löfð fram fyrirspurn um útfærslu bílastæða á einbýlishúsalóðinni að Skerpluholti 7.
Skipulagsnefnd metur tillögu að tilfærslu bílastæðis sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Skerpluholti 4,5,6, 8 og 9 sem og Vorbraut 12 og 14.