Beint í efni

Þorraholt 11-19 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2402387

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

3. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður sem nær til lóðanna; Þorraholt 11,13,15,17 og 19. Tillögunni fylgir umsókn lóðarhafa um deiliskipulagsbreytingu.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
· Byggingarreitir neðanjarðar breytast á lóðum Þorraholt 11,13,15,17 og 19.
· Byggingarmagn neðanjarðar eykst á lóðum Þorraholt 11,13,15,17 og 19.
· Rampar/ skábrautir að bílakjallara mega fara út fyrir byggingarreit
· Mögulegt verði að samnýta rampa milli lóða.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að deiliskipulagsbreytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.