Kjarrprýði 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
14. fundur
Lögð fram umsókn lóðarhafa að Kjarrprýði 4 um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á einni hæð. Tillagan gerir ekki ráð fyrir því að tekið sé tillit til ákvæða um verndun hraunmyndanna á nyrðri hluta byggingarreits. Lagður fram uppdráttur sem sýnir með hvaða hætti lóðarhafi sjái fyrir sér útfærslu á lóð.
Skipulagsnefnd telur að fordæmisgildi þess að fella út ákvæði um varðveislu hraunmyndanna sé mjög mikið og gangi ákveðið gegn því markmiði deiliskipulagsins sem sett er fram í grein 1.5 í deiliskipulagsgreinargerð en þar segir: "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraunmyndanir eftir því sem nokkur kostur er."
Skipulagsnefnd gerir því athugasemd við að byggingarleyfi sé veitt í samræmi við þá uppdrætti sem lagðir eru fram að einbýlishúsi að Kjarrprýði 4, enda eru uppdrættir ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags Garðahrauns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsalóð að Kjarrprýði 4.
Þar sem framkvæmt hefur verið í óleyfi á lóðinni má telja ljóst að erfitt verður að uppfylla ákvæði deiliskipulags Garðahrauns um verndun hraunmyndana á lóðinni.
Skipulagsnefnd óskar eftir skýringum lóðarhafa á því hvernig hann hyggst uppfylla fyrrgreind ákvæði deiliskipulags. Jafnframt er óskað eftir skýringum á því hvers vegna verkinu var hrundið af stað án tilskilinna leyfa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á lóðinni Kjarrprýði nr.4. Í gildi er deiliskipulag Garðahrauns.
Umsókn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfunda.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
4. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Kjarrprýði 4.
Uppdrættir eru ekki í samræmi við ákvæði deiliskipulags. Hæðasetningar lands innan lóða skal laga að náttúrulegu landslagi eins og frekast er unnt og einnig skal hæð lóða við lóðarmörk, að opnum svæðum, falla að náttúrulegu landslagi.
Vísað til umfjöllunar í skipulagsnefnd.