HönnunarMars 2024
Ferill máls
Stjórn Hönnunarsafns Íslands
01
02. fundur
Farið yfir hvernig gekk og hvað má gera betur.
Sýningin Eldblóm - hvernig dans varð að vöruhönnun opnaði á HönnunarMars og var framlag safnsins til hátíðarinnar. Sýningin var kortlagning á verkum Sigríður Soffíu Níeldsdóttur, dansara og danshöfundar. Hún hefur hannað flugeldasýningar sem þróuðust áfram í garðhönnun sem þróaðist áfram í vöruhönnun, þaðan í matarhönnun og upplifunarhönnun. Aðsóknin var mjög góð á opnunardaginn en lítil dagana á eftir. Sýningin var virkjuð í safnfræðslu fyrir grunnskólanemendur þar sem þeir fengu innsýn inn í hvernig ein hugmynd getur þróast í aðra og þannig koll af kolli. Verk barnanna voru sýnd á Barnamenningarhátíð Garðabæjar. Það er áskorun að keppa við alla sýningarnar og viðburðina á HönnunarMars. Mögulega mætti setja meira púður í að kynna þær betur eftir HönnunarMars þar sem þær standa áfram í safninu.