Beint í efni

Hönnunarsafnið sem heimili

Málsnúmer 2405004HO

Ferill máls

Stjórn Hönnunarsafns Íslands

01

02. fundur

Forstöðumaður kynnir næstu "heimsóknir" inn í sýninguna.

Fastar sýningar eru mikilvægar, en þeim fylgir hætta á að aðsókn detti niður. Til þess að halda sýningunni lifandi hafa verið kynntar til leiks „heimsóknir“ inn í sýninguna. Þá er tilefni til að halda aðra opnun, gestir koma aftur á sýninguna og hún öðlast nýjan áhugaverðan vinkil og ný samtöl og pælingar verða til. Heimilið er endalaus uppspretta áhugaverðra viðfangsefna.

Næsta "heimsókn" inn í föstu sýningu safnsins, Hönnunarsafnið sem heimili, fjallar um örverur á heimilum. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands og opnar 27. september. Boðið verður upp á örverugigg 10. október þar sem súrdeig, molta, melting og fleira skemmtilegt kemur við sögu.