Vorbraut 8-12 - Deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
9. (942). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir sameiginlegum bílakjallara fjölbýlishúsanna við Vorbraut 8, 10 og 12 og að byggingarreitur verði breikkaður úr 14 metrum í 15 metra.
Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum að Vorbraut nr.7, 9, 11, 13 og 15 og Skerpluholts 1, 3, 5 og 7. Við framkvæmd grenndarkynningar skal fyrir liggja til kynningar uppdrættir sem sýna fram á fyrirhugaðan frágang lóðar og lóðarmarka.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03

Bæjarráð Garðabæjar
05
21. (2122). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir sameiginlegum bílakjallara fjölbýlishúsanna við Vorbraut 8, 10 og 12 og að byggingarreitur verði breikkaður úr 14 metrum í 15 metra.
Grenndarkynna skal tillöguna lóðarhöfum að Vorbraut nr. 7, 9, 11, 13 og 15 og Skerpluholts 1, 3, 5 og 7. Við framkvæmd grenndarkynningar skal fyrir liggja til kynningar uppdrættir sem sýna fram á fyrirhugaðan frágang lóðar og lóðarmarka.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem gerir ráð fyrir sameiginlegum bílakjallara á lóðunum Vorbraut 8, 10 og 12 með einum aðkomurampi milli húsanna Vorbraut 8 og 10. Lóðirnar yrðu sameinaðar í eina lóð.
Einnig gerir tillagan ráð fyrir því að byggingarreitur verði breikkaður úr 14 m í 15.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar nr.7,9,11,13 og 15 og Skerpluholts 1,3,5 og 7.
Áður en grenndarkynning fer fram þurfa að liggja fyrir uppdrættir sem sýna fram á fyrirhugaðan frágang lóðar og lóðarmarka.