Beint í efni

Deiliskipulag borteiga í sunnanverðu Kapelluhrauni, nr. 0934/2024: Lýsing

Málsnúmer 2407337

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

12. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðar um tillögu á deiliskipulagi fyrir sunnanvert Kapelluhraun sem tengist umfangsmiklum áformum fyrirtækisins Carbfix sem nefnist Coda Terminal um uppbyggingu móttöku- og geymslustöðvar fyrir koldíoxíð innan lögsögu Hafnarfjarðar. Tillagan gerir ráð fyrir fjórum reitum fyrir borteiga fyrir niðurdælingarholur.
Lögð fram matsskýrsla sem fylgdi umhverfismati framkvæmdarinnar, og umsagnir sem borist hafa m.a. frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti.

Skipulagsnefnd tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Umhverfisstofnunar um að gera þurfi grein fyrir áhrifum á yfirborðsvatnshlotið og grunnvatnshlotið Kleifarvatn. Nefndin minnir auk þess á að í greinargerð heildarendurskoðunar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu eru tilgreindar niðurstöður úr greiningarvinnu Vatnaskila. Þar kemur m.a. fram að einn af framtíðarmöguleikum vatnsöflunar á höfuðborgarsvæðinu er í Fagradal norðaustan við Kleifarvatn en ekki verður séð að minnst sé á þann álitlega vatnstökustað, hvorki í umhverfismatsskýrslu né í umsögnum.
Þar sem að fram kemur í niðurstöðum umhverfismats að áhrif á grunnvatn séu metin óviss vill nefndin árétta mikilvægi þess að mótvægisaðgerðum og vöktun sé framfylgt.
Skipulagsnefnd telur að leita hefði átt umsagnar Garðabæjar við umhverfismat framkvæmdarinnar þar sem að sveitarfélagið ætti að teljast viðeigandi umsagnaraðili þar sem að hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar teygi sig inn í lögsögu þess sbr.15.gr.laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd Garðabæjar ekki athugasemdir við skipulagstillöguna sem tengist áformum um Coda Terminal innan lögsögu Hafnarfjarðar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

20 (22-26). fundur

Markmið deiliskipulagstillögunnar er að setja fram skipulagsskilmála sem heimila niðurdælingu CO2 á fjórum iðnaðarsvæðisreitum í syðri hluta Kapelluhrauns og Selhrauns. Deiliskipulag er unnið og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingu og umhverfismati vegna Coda Terminal og deiliskipulagsbreytingum í 2. og 3. áfanga Hellnahrauns. Í greinargerð með aðalskipulagi er að finna ítarlega umfjöllun um forsendur, aðdraganda, umhverfi og staðhætti, fornminjar, tengsl við aðrar áætlanir, Coda terminal, carbfix tæknina og fleira.

Ítarefni: Coda Terminal - Umhverfismatsskýrsla 2024 https://skipulagsgatt.is/files/9555740c-3e2f-4b34-8e15-17b850a03355

Deiliskipulagstillaga rædd og lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir sunnanvert Kapelluhraun sem er liður í að byggja upp Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir koldíoxíð á landi Hafnarfjarðar.
Tillögur Hafnarfjarðarbæjar sem eru í auglýsingu á aðalskipulagsstigi, deiliskipulagsstigi og framkvæmdastigi eru umfangsmiklar og umdeildar eins og fram hefur komið í samfélagsumræðu. Í meðfylgjandi umhverfismatsskýrslu kemur m.a. fram að áhrifa mun hugsanlega gæta á stöðu og ástand grunnvatns innan marka Garðabæjar þar sem að m.a. á að fylgjast með áhrifum á Urriðakotsvatn.
Skiplagsnefnd óskar eftir kynningu Hafnarfjarðarbæjar á tillögum áður en að afstaða Garðabæjar liggur fyrir.

Bæjarráð Garðabæjar

04

29. (2130). fundur

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í skipulagsnefnd.