Afgreiðsla skipulagsnefndar. Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna borteiga, nr. 0086/2024
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (2137). fundur
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar frá 26. september 2024 vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, vegna borteiga. Fram kemur að skipulagsnefnd taki undir þau atriði sem fram koma í umsögn Umhverfissvotfnunar um að gera þurfi grein fyrir áhrifum á yfirborsvatnshlotið og grunnvatnshlotið Kleifarvatn. Þá minnir nefndin auk þess á að í greinargerð heildarendurskoðunar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu eru tilgreindar niðurstöður úr greiningarvinnu Vatnaskila. Þar komi m.a. fram að einn af framtíðarmöguleikum vatnsöflunar á höfuðborgarsvæðinu er í Fagradal norðaustan við Kleifarvatn en ekki verður séð að minnst sé á þann álitlega vatnstökustað, hvorki í umhverfismatsskýrslu né í umsögnum.
Þar sem að fram kemur í niðurstöðum umhverfismats að áhrif á grunnvatn séu metin óviss áréttar skipulagsnefnd mikilvægi þess að mótvægisaðgerðum og vöktun sé framfylgt.
Skipulagsnefnd telur að leita hefði átt umsagnar Garðabæjar við umhverfismat framkvæmdarinnar þar sem að sveitarfélagið ætti að teljast viðeigandi umsagnaraðili þar sem að hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar teygi sig inn í lögsögu þess sbr.15.gr.laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd Garðabæjar ekki athugasemdir við skipulagstillöguna sem tengist áformum um Coda Terminal innan lögsögu Hafnarfjarðar.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið skipulagsnefndar sem koma fram í afgreiðslu nefndarinnar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðar um tillögu á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem tengist umfangsmiklum áformum fyrirtækisins Carbfix sem nefnist Coda Terminal um uppbyggingu móttöku- og geymslustöðvar fyrir koldíoxíð innan lögsögu Hafnarfjarðar. Breytingartillagan nær til svæðis sunnan Straumsvíkur sem er iðnaðarsvæði, athafnasvæði og óbyggt svæði í Kapelluhrauni og er gert ráð fyrir staðsetningum borteiga þar sem niðurdæling koldíoxíðs fer fram.
Lögð fram matsskýrsla sem fylgdi umhverfismati framkvæmdarinnar, og umsagnir sem borist hafa m.a. frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti.
Skipulagsnefnd tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögn Umhverfisstofnunar um að gera þurfi grein fyrir áhrifum á yfirborðsvatnshlotið og grunnvatnshlotið Kleifarvatn. Nefndin minnir auk þess á að í greinargerð heildarendurskoðunar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu eru tilgreindar niðurstöður úr greiningarvinnu Vatnaskila. Þar kemur m.a. fram að einn af framtíðarmöguleikum vatnsöflunar á höfuðborgarsvæðinu er í Fagradal norðaustan við Kleifarvatn en ekki verður séð að minnst sé á þann álitlega vatnstökustað, hvorki í umhverfismatsskýrslu né í umsögnum.
Þar sem að fram kemur í niðurstöðum umhverfismats að áhrif á grunnvatn séu metin óviss vill nefndin árétta mikilvægi þess að mótvægisaðgerðum og vöktun sé framfylgt.
Skipulagsnefnd telur að leita hefði átt umsagnar Garðabæjar við umhverfismat framkvæmdarinnar þar sem að sveitarfélagið ætti að teljast viðeigandi umsagnaraðili þar sem að hugsanleg áhrif framkvæmdarinnar teygi sig inn í lögsögu þess sbr.15.gr.laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd Garðabæjar ekki athugasemdir við skipulagstillöguna sem tengist áformum um Coda Terminal innan lögsögu Hafnarfjarðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í því skyni að fullbyggja megi Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir koldíoxíð á landi Hafnarfjarðar.
Tillögur Hafnarfjarðarbæjar sem eru í auglýsingu á aðalskipulagsstigi, deiliskipulagsstigi og framkvæmdastigi eru umfangsmiklar og umdeildar eins og fram hefur komið í samfélagsumræðu. Í meðfylgjandi umhverfismatsskýrslu kemur m.a. fram að áhrifa mun hugsanlega gæta á stöðu og ástand grunnvatns innan marka Garðabæjar þar sem að m.a. á að fylgjast með áhrifum á Urriðakotsvatn.
Skiplagsnefnd óskar eftir kynningu Hafnarfjarðarbæjar á tillögum áður en að afstaða Garðabæjar liggur fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
04
29. (2130). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar í skipulagsnefnd.